Von efst, Gjöf í þriðja – sænskar hryssur lækka-

  • 2. ágúst 2011
  • Fréttir
Von efst, Gjöf í þriðja - sænskar hryssur lækka-

Hin norska Von frá Vigra stendur efst í elsta flokki hryssa eftir fyrri umferð hæfileikadóma. Hún hlaut glæsilega 8,62 fyrir hæfileika, í gær fékk hún 8,68 fyrir sköpulag og er því með 8,65 í aðaleinkunn. Von er undan Angasyninum Nökkva frá Vestra-Geldingaholti og Hel frá Gullberastöðum, sem er undan Stíg frá Kjartansstöðum.

Önnur er Odda fra Gultentorp í Danmörku, sem hlaut 8,59 fyrir hæfileika og er með í aðaleinkunn 8,32.

Í þriðja sæti er okkar hryssa, Gjöf frá Magnússkógum, sem hlaut 8,24 fyrir hæfileika, þar af einkunnina 9 fyrir fegurð í reið. Í aðaleinkunn hefur Gjöf nú 8,23 sem er nokkuð frá 8,55 dómi sem hún fékk í vor.  Dómur Gjafar er hér meðfylgjandi.

Sænsku hryssurnar hafa ekki átt jafn góðu gengi að fagna og í kynbótadómum í heimalandinu og vekur það nokkra athygli að þær falla allar niður í hæfileikaeinkunn. Meyla från Jemthagen lækkar úr 8,80 í 7,98 og Ásdís från Knutshyttan lækkar úr 8,58 í 8,00 og Frísk fran Knubbo lækkar úr 8,6 í 8,31.

Dómur Gjafar:

Sköpulag

Höfuð   8

Háls/herðar/bógar         8.5

Bak og lend        8

Samræmi            8

Fótagerð             8

Réttleiki               7

Hófar    9

Prúðleiki              8.5

Sköpulag             8.22

Hæfileikar

Tölt        8

Brokk    8.5

Skeið     8

Stökk    8

Vilji og geðslag 8.5

Fegurð í reið      9

Fet         7

Hægt tölt            8.5

Hægt stökk        8

Hæfileikar           8.24

 

Aðaleinkunn 8.23

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link