Vonarstjarna í Svíþjóð
Stóðhesturinn Lótus frá Vatnsleysu var seldur til Svíþjóðar á dögunum.
Lótus er fæddur 2006 undan Töfra frá Kjartansstöðum og gæðingshryssunni Lydíu frá Vatnsleysu. Lótus fjölhæfur hestur sem hefur hlotið 8,1 í aðaleinkunn kynbótadóms, 7,83 fyrir sköpulag og 8,28 fyrir kosti, þar af 9 fyrir stökk og fet. Þá hafði hann stigið góð skref á keppnisbrautinni og er því sannarlega gæðingur sem á framtíðina fyrir sér.
Hægt er að panta áskrift í síma 511 6622 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH