Vormót í Fossgerði
Austfirðingar blása til vormóts í Fossgerði sunnudaginn 22. apríl nk. og hefst það kl. 13 að er fram kemur á vefsíðum hestamannfélagsins Freyfaxa og Blæs.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Byrjendaflokkur fyrir börn: Frjáls gangtegund, leyfilegt að teyma undir knöpunum.
- T7 – Fyrir börn fædd 1999 og síðar: Hægt tölt 1.hringur og fegurðartölt 1.hringur upp á vinstri hönd.
- T7 – Opinn flokkur fyrir minna vana knapa: Hægt tölt 1.hringur og fegurðartölt 1.hringu, upp á vinstri hönd.
- T1 – Opinn flokkur fyrir meira vana knapa: Hægt tölt 1.hringur, snúið við, tölt með hraðabreytingum 1.hringur og yfirferðartölt 1.hringur.
- Unghrossakeppni – þrír flokkar: hross fædd 2006 – 2007 – 2008,
Ekki er æskilegt að hrossin hafið hlotið kynbótadóm.
Keppnisform: 2 hestar inni á vellinum í einu, riðnir allt aðð 3.hringir, sýnandi velur hvaða gangtegund hann sýnir. (firmakeppnisform)
Úrslit verða riðin eftir hvern flokk.
Við skráningu skulu koma fram eftirfarandi atriði:
- Nafn hests, litur og aldur hests
- Nafn foreldra hests
- Nafn knapa og eiganda
- Óski knapar eftir að fá að ríða upp á ákveðna hönd í T1, verða þeir að láta þess getið við skráningu, annars er riðið upp á vinstri hönd.
Skráningu lýkur föstudaginn 20.apríl klukkan 21. Skráning á [email protected] eða í síma 8462371.
Skráningargjald er: 1500 kr. á skráningu hjá fullorðnum, 1000 kr. á skráningu í byrjendaflokk og T7 fyrir börn
Skráningargjald greiðist í upphafi móts – Athugið að ekki verður posi á staðnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH