World Rank mót í Gæðingakeppni
Landsamband hestamanna og Gæðingadómarafèlag LH hafa sett af stað World Rank lista í Gæðingakeppni.
Mótin á Íslandi verða þrjú í ár, það fyrsta á Hellu næstu helgi 12.-14.júni.
Annað mótið verður Meistaramót Íslands sem verður dagana 16.-19.júlí á Hellu og það þriðja verður Gæðingaveisla Sörla 25.-28.ágúst.
Keppt er eftir lögum og reglum LH í gæðingakeppni og verður stöðulistinn alþjóðlegur í öllum flokkum og birtur á heimasíðu Lh.
Með kveðju.
Landsamband Hestamanna og Gæðingadómarafélagið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Ásmundur Ernir og Hlökk efst á heimslista ársins í tölti T1