World Toelt haldið í 10 sinn

  • 17. nóvember 2016
  • Fréttir
World Toelt mun nú fara fram í tveimur löndum.

WorldToelt veðrur haldið í Odense Congress Center, Sparekasen Fyn Arena, 10.-11. febrúar á næsta ári en World Toelt hefur ávallt verið vinsæll viðburður og hafa margir íslendingar lagt ferð sína út til að horfa á mótið. 

Á næsta ári verður mótið í fyrsta sinn einnig haldið í Svíþjóð í Flyinge Horsecenter, 14.-15. apríl.

Skipuleggjendur mótsins sendu frá sér fréttatilkynningu um mótið nú á dögunum sem er svo hljóðandi:

„World Toelt er óopinberlega heimsmeistaramót fyrir íslenska hestinn innanhúss. Þetta er stærsti innanhús viðburður heimsins fyrir íslenska hestinn en það er haldið í 10unda sinn árið 2017. Í fyrra var sett áhorfendamet en 5700 áhorfendur voru á svæðinu yfir helgina. 

World Toelt er saman safna af því best sem íslenski hesturinn bíður upp á – og 2017 verður viðburðurinn haldinn bæði í Danmörku og Svíþjóð. Skráning fyrir mótið í Danmörku hófst 1. nóvember og hafa margir hæfileikaríkir og reyndir hestar og knapar skráð sig til leiks. Eins og fyrri ár fer skráning fram í gegnum sporti.dk. 

Miðar fyrir danska mótið var opnuð 15. nóvember og er hægt að kaupa þá hér:  http://www.sporti.dk/en/ticket.php?e=58 Ef þú vilt tryggja þér bestu sætin þá verður að vera fljótur því þessir miðar er fljótir að fara.  

 

 

 


Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link