WR Íþróttamót Geysis
Helgina 12.-15. maí verður haldið WR Íþróttamót Geysis á Rangárbökkum við Hellu. Keppt verður í öllum aldursflokkum og í fjölda keppnisgreina innan hvers flokks.
Skráning er hafin og lýkur sunnudagskvöldið 8. maí kl. 23:59. Öll skráning fer fram á www.sportfeng.com og allar upplýsingar varðandi skráningu eru einnig að finna á þar. Ef ekki næst nægur fjöldi skráninga í grein er möguleiki á að það verði sameinað öðrum greinum eða felldar niður.
Allar afskráningar og breytingar fara fram í síma 863-7130.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH