Opið WR Íþróttamót Sleipnis

  • 4. maí 2023
  • Tilkynning
Opið WR Íþróttamót Sleipnis fer fram 17. – 21. maí á Brávöllum

Hið árlega og stórglæsilega WR íþróttamót Sleipnis verður haldið dagana 17-21 maí á Brávöllum. Mótið hefst á Skeiðleikum Líflands og Eques og Skeiðfélagsins.

Um opið mót er að ræða með þeim takmörkunum og hámarksfjölda keppenda í hverja grein að undanskildum Skeiðleikum. Hvaða greinar eru í boði má finna hér fyrir neðan ásamt hámarksfjölda.

Fyrirkomulag á skráningu verður þannig háttað að opið verður AÐEINS fyrir félagsmenn Sleipni að skrá 4 og 5 maí.

Skráning fyrir aðra hefst því laugardag 6.maí og stendur út fimmtudaginn 11.maí.

Skráningagjöld hafa ekkert breyst frá því í fyrra og eru því 7000kr á Meistaraflokk, Ungmennaflokk, 1.flokk og 2.flokk, nema gæðingaskeið sem verður 5000kr ásamt unglingaflokki og barnaflokki.
Skráning fer i gegnum sportfengur.com

Allar fyrirspurnir skal senda á [email protected]

Íþróttamótanefnd Sleipnis.

Keppnisgreinar Flokkur Hámarksfj
T1 Meistaraflokkur 40
T2 Meistaraflokkur 20
F1 Meistaraflokkur 30
V1 Meistaraflokkur 40
T1 Ungmennaflokkur 30
T2 Ungmennaflokkur 15
V1 Ungmennaflokkur 30
F1 Ungmennaflokkur 20
V1 1.flokkur 30
F2 1.flokkur 20
T3 1.flokkur 25
T4 1.flokkur 10
T3 2.flokk
T7 2.flokkur 10
V2 2.flokkur 10
T3 Unglingaflokkur 15
V2 Unglingaflokkur 15
F2 Unglingaflokkur 15
T4 Unglingaflokkur 10
T7 Barnaflokkur 10
T3 Barnaflokkur 10
V2 Barnaflokkur 15
PP1 Meistaraflokkur 20
PP1 1.flokkur 10
PP1 Ungmennaflokkur 15

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link