Yfirlit hæst dæmdu hrossa í tölti T1-

  • 26. september 2011
  • Fréttir
Yfirlit hæst dæmdu hrossa í tölti T1-

Það kemur varla á óvart að Landsmóts- og Íslandsmeistarinn í tölti leiðir lista yfir hæstu einkunnir í töltkeppni T1 á árinu.

Alfa frá Blesastöðum 1a hlaut 8,67 í forkeppni Íslandsmótsins á Selfossi í sumar og reiknast það sem hæsta einkunn sem hlotist hefur í forkeppnum tölts T1 samkvæmt gagnagrunninum Sportfeng.

Aðrir nafntogaðir gæðingar prýða listann og birtist hann hér með hæstu einknkunum sem þeir fengu í ár ásamt myndum.

1. Alfa frá Blesastöðum 1A, kn. Sigursteinn Sumarliðason   -Íslandsmótið í hestaíþróttum fullorðinna (WR) : 8,67  
2. Tumi frá Stóra-Hofi , kn. Viðar Ingólfsson – Reykjavíkurmeistaramót Fáks (WR):   8,57
3. Nátthrafn frá Dallandi, kn. Halldór Guðjónsson – Gæðingamót Fáks (WR):  8,5    
4. Mídas frá Kaldbak, kn. Steingrímur Sigurðsson   – Landsmót hestamanna 2011 (WR): 8,43
5. Kjarnorka frá Kálfholti, kn. Sigurður Sigurðarson – Reykjavíkurmeistaramót Fáks (WR):    8,27
6.  Árborg frá Miðey, kn. Jakob Svavar Sigurðsson   – Landsmót hestamanna 2011 (WR):  8,2
7.  Sigur frá Hólabaki, kn. Hinrik Bragason – Íslandsmótið í hestaíþróttum fullorðinna (WR):  8,13
8.  Sveigur frá Varmadal, kn. Hulda Gústafsdóttir   – Landsmót hestamanna 2011 (WR):  8,13
9.  Tónn frá Melkoti, kn. John Sigurjónsson  – Gullmótið og úrtaka fyrir HM (WR): 8,07 
10.  Díva frá Álfhólum, kn. Sara Ástþórsdóttir – Íslandsmótið í hestaíþróttum fullorðinna (WR): 8,03

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link