Yfirlitið verður á fimmtudaginn
„Yfirlitssýningin fer fram á fimmtudaginn 25. júlí og hefst stundvíslega kl. 8:30.
Röð flokka verður eftirfarandi:
• 7v. og eldri hryssur
• 6v. hryssur (fyrstu 3 holl í flokki)
• Hádegishlé
• 6v. hryssur – framhald
• 5v. hryssur
• 4v. hryssur
• Stóðhestar (4v., 5v., 6v., 7v. og eldri).
Áætluð lok yfirlits um kl. 19.
Nánari röðun hrossa í holl má nálgast síðla að kvöldi þess 24. júlí, að afloknum dómstörfum, á www.rml.is“ segir í tilkynningu frá sýningarstjóra.