Yfirlýsing frá Félagi Tamningamanna
Félag Tamningamanna hefur sent frá sér tilkynningu vegna myndbands sem birtist á ljósvakamiðlum í gær:
„Vegna myndbands sem gengur nú um internetið þar sem stúlka beitir óviðeigandi og ófaglegum tamningaaðferðum, vill Félag Tamningamanna koma eftirfarandi á framfæri.
Aðalmarkmið Félags Tamningamanna er að stuðla að réttri og góðri tamningu og meðferð íslenska hestsins sem og að stuðla að bættum hag félagsmanna sinna.
Félagið fordæmir þær aðferðir sem viðhafðar eru í myndbandinu og hefur vísað málinu til aganefndar félagsins.
Virðingafyllst.
Félag Tamningamanna.“
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV