Yfirlýsing frá Hinriki Bragasyni
Eftirfarandi yfirlýsing hefur borist Eiðfaxa:
Ég undirritaður, Hinrik Bragason hef ákveðið að mæta ekki með Óm frá Kvistum til keppni í milliriðlum í A-flokki. Smá fleiður kom á hestinn í forkeppninni. Ómur mætti í skoðun fyrir keppni í milliriðlum í dag hjá dýralæknum mótsins og stóðst skoðun og er klár til keppni. Hinsvegar vill ég ekki taka neina áhættu með hestinn.
Ómur mun fylgja afkæmum sínum í sýningu á laugardag hann en þar hlýtur hann 1. verðlaun fyrir afkvæmi.
Með Landsmótskveðju
Hinrik Bragason
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH