Ytri-Bægisá I er Ræktunarbú HEÞ 2011

  • 25. nóvember 2011
  • Fréttir
Ytri-Bægisá I er Ræktunarbú HEÞ 2011

Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga var haldinn í gær í Ljósvetningabúð. Fjölmenni var á fundinum eða um 70 manns en þessir fundir hafa ávallt verið vel sóttir af hestaáhugafólki á Norðausturlandi að er fram kemur á heimasíðu samtakana.

„Fyrirlesarar að þessu sinni voru þau Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ og Mette Mannseth tamningamaður og reiðkennari við Háskólann á Hólum. Guðlaugur fór að venju vítt og breytt yfir hrossaræktarsviðið en Mette hélt afar fróðlegt erindi um tamningu, þjálfun og undirbúning unghrossa sem stefnt er með í kynbótasýningu.

Ræktendur hlutu viðurkenningar fyrir 3 efstu hross í hverjum flokki en jafnframt voru veitt sérstök verðlaun fyrir hæst dæmda kynbótahrossið (aldursleiðréttur dómur skv. viðmiðun BÍ). Hæst dæmda hrossið var 4 vetra stóðhesturinn Eldur frá Torfunesi með einkuninna 8,37 sem jafngildir 8,67 sé tekið tillit til aldursleiðréttingar.

Sex bú voru tilnefnd til ræktunarverðauna HEÞ. Þau eru í stafrófsröð: Grund II, Komma, Litla-Brekka, Ytra-Dalsgerði og Ytri-Bægisá I.

Ræktunarbú HEÞ 2011 er Ytri-Bægisá I í Hörgársveit.
Þar á bæ stunda hrossarækt þeir Haukur Sigfússon og Þorvar Þorsteinsson. Á þessu ári voru sýnd þrjú hross frá búinu í kynbótadómi. Meðaleinkunn sýndra hrossa var 8,13 og var meðalaldur þeirra 6 ár. Tvö af þeim hlutu 8,0 eða hærra í aðaleinkunn. Langefstur í þeim hópi er stóðhesturinn Stáli frá Ytri-Bægisá sem hlaut 8,41 í aðaleinkunn á Landsmótinu á Vindheimamelum sl. sumar. Ræktendur á Ytri-Bægisá hafa um nokkura ára skeið stundað farsæla hrossarækt þar sem áhersla er lögð á gæði umfram magn.

Eftir að verðlaunaveitingum og erindum lauk kvaddi sér hljóðs Þorsteinn Egilson og óskaði eftir stuðningi fundarins við umsókn Funa um Landsmót á Melgerðismelum 2014. Lagði hann fram eftirfarandi tillögu sem samþykkt var samhljóða. „Haustfundur HEÞ, haldinn í Ljósvetningabúð 24. nóvember 2011, styður umsókn Hestamannafélagsins Funa um að Landsmót hestamanna 2014 verði haldið á Melgerðismelum. Jafnframt minnir fundurinn á samþykkt aðalfundar Félags hrossabænda 2011 þess efnis að landsmót skulu haldin til skiptis á Norðulandi og Suðurlandi. Á Melgerðismelum er frábær aðstaða fyrir landsmót, m.a. með nýjum hestvænum kynbótavelli. Alla aðstöðu fyrir ferðamenn er að finna innan 25 km fjarlægðar frá mótssvæðinu og á Akureyri eru öflugar samgöngumiðstöðvar. Telur fundurinn tímabært að efna aftur til Landsmóts hestamanna á félagssvæði HEÞ.”“

Efstu kynbótahrossin ræktuð af félagsmönnum HEÞ árið 2011 eru:

 
4 vetra stóðhestar
 
1. sæti
Eldur frá Torfunesi B:8,46  H:8,30  A:8,37
F: Máttur frá Torfunesi M: Elding frá Torfunesi
Ræktandi: Ræktunarbúið Torfunesi
Héraðssýning á Vindheimamelum
Sýnandi: Mette Camilla Moe Mannseth
 
2. sæti
Grásteinn frá Garðsá B:7,76  H:7,23   A:7,44
F: Klettur frá Hvammi M: Krafla frá Garðsá
Ræktandi Orri Óttarsson
Kynbótasýning á Dalvík
Sýnandi: Þórhallur Rúnar Þorvaldsson
 
3. sæti
Grallari frá Garðsá B:7,67  H:7,26  A:7,43
Ræktandi: Orri Óttarsson
F: Keilir frá Miðsitju M: Svala frá Garðsá
Kynbótasýning Akureyri
Sýnandi: Þórhallur Þorvaldsson
 
 
 
5 vetra stóðhestar
 
1. Sæti
Krókur frá Ytra-Dalsgerði   B:8,59  H:8,33  A:8,43
F: Gári frá Auðsholtshjáleigu M: Hnoss frá Ytra-Dalsgerði
Ræktandi: Kristinn Hugason
Landsmót 2011 – Vindheimamelar
Sýnandi: Anna Sigríður Valdimarsdóttir
 
2. sæti
Símon frá Efri-Rauðalæk  B:8,33 H:8,38 A:8,36
F: Galsi frá Sauðárkróki M: Pandóra frá Tungu
Ræktendur: Guðlaugur Arason og Snjólaug Baldvinsdóttir
Héraðssýning á Hvammstanga
Sýnandi: Baldvin Ari Guðlaugsson
 
3. Sæti
Djákni frá Hellulandi B:8,14 H:8,48 A:8,35
F: Hágangur frá Narfastöðum M: Myrká frá Hellulandi
Ræktandi: Kristján H Sigtryggsson
Héraðssýning á Vindheimamelum
Sýnandi: Þórarinn Eymundsson
 
6 vetra stóðhestar
 
1. Sæti
Þorri frá Möðrufelli B:8,08  H:8,40  A:8,27
F: Gustur frá Hóli M: Hrefna frá Ljótsstöðum 1
Ræktandi: Þorbjörn Hreinn Matthíasson
Kynbótasýning Akureyri
Sýnandi: Þorbjörn Hreinn Matthíasson
 
2. sæti
Gústi góði frá Bringu B:8,21 H:7,83 A:7,98
F: Gustur frá Hóli M: Stjarna frá Kvíabekk
Ræktendur: Sverrir Reynir Reynisson og Guðbjörg Jóna Sigurðardóttir
Hengsten- en merriekeuring Oirschot 2011
Sýnandi: Dhr. E.J.H. Spee
 
3. sæti
Styrmir frá Efri-Rauðalæk B:7,66  H:8,08  A:7,92
F: Galsi frá Sauðárkróki M:Nótt frá Þverá, Skíðadal
Ræktandi:  Guðlaugur Arason
Strömsholm 1
Sýnandi: Reynir Aðalsteinsson
 
7 vetra og eldri stóðhestar
 
1. sæti
Grunnur frá Grund II  B:8,38 H:8,48  A:8,44
F: Þóroddur frá Þóroddsstöðum M: Glíma frá Vindheimum
Ræktandi: Þorsteinn Egilson
Landsmót 2011 – Vindheimamelar
Sýnandi: Daníel Jónsson
 
2. sæti
Lektor frá Ytra-Dalsgerði B:8,59  H:8,31  A:8,42
F: Gári frá Auðsholtshjáleigu M: Gígja frá Ytra-Dalsgerði
Ræktandi: Kristinn Hugason
Héraðssýning í Víðidal
Sýnandi: Sigurður Vignir Matthíasson
 
3. sæti
Stáli frá Ytri-Bægisá I  B:8,26 H: 8,51 A:8,41
F: Gustur frá Hóli M: Nótt frá Akureyri
Ræktendur: Þorvar Þorsteinsson og Haukur Sigfússon
Landsmót 2011 – Vindheimamelar
Þorvar Þorsteinsson
 
4 vetra hryssur
 
1. sæti
Magdalena frá Kommu B:8,2  H:7,92  A:8,03
F: Markús frá Langholtsparti M: Melkorka frá Kommu
Ræktandi: Vilberg Jónsson
Síðsumarsýning Melgerðismelum
Sýnandi: Auðbjörn F Kristinsson
 
2. sæti
Kolka frá Efri-Rauðalæk B:8,21  H:7,89  A:8,02
F: Vilmundur frá Feti M: Drottning frá Efri-Rauðalæk
Ræktendur: Guðlaugur Arason og Snjólaug Baldvinsdóttir
Héraðssýning á Vindheimamelum
Sýnandi: Baldvin Ari Guðlaugsson
 
3. sæti
Kolbrá frá Hléskógum B:7,80  H: 7,90 A: 7,86
F: Kostur frá Skagaströnd M: Bára frá Húsavík
Ræktandi: Guðbergur E. Eyjólfsson
Kynbótasýning Akureyri
Sýnandi: Ísólfur Líndal Þórisson
 
5 vetra hryssur
 
1. sæti
Hátíð frá Syðra-Fjalli I  B:8,21  H:8,14  A:8,17
F: Blær frá Torfunesi M: Vaka frá Syðra-Fjalli I
Ræktandi: Aðalfjall ehf.
Kynbótasýning á Dalvík
Sýnandi: Erlingur Ingvarsson
 
2.-4. sæti 
Lygna frá Litlu-Brekku B:8,31  H:7,98  A:8,11
F: Sámur frá Litlu-Brekku  M: Líf frá Litlu-Brekku
Ræktandi: Vignir Sigurðsson
Síðsumarsýning Melgerðismelum 
Sýnandi: Bjarni Jónasson 
 
2.-4. sæti
Drífa frá  Ytri-Bægisá I  B:8,24  H: 8,03   A: 8,11
F: Blær frá Torfunesi  M: Dögg frá Eyvindarstöðum
Ræktandi: Þorvar Þorsteinsson
Kynbótasýning á Dalvík
Sýnandi: Þorvar Þorsteinsson
 
2. – 4 sæti
Randalín frá Efri-Rauðalæk  B:7,92  H:8,23  A:8,11
F: Þristur frá Feti  M: Kría frá Krithóli
Ræktandi: Baldvin Ari Guðlaugsson
Kynbótasýning Akureyri
Bjarni Jónasson
 
6 vetra hryssur
 
1. sæti
Rauðhetta frá Kommu B:8,11 H:8,80 A:8,52
F: Álfur frá Selfossi M: Vilma frá Akureyri
Ræktandi: Vilberg Jónsson
World Championships 2011 in St. Radegund
Sýnandi: Erlingur Erlingsson
 
2. sæti
Freyja frá Efri-Rauðalæk B:8,07  H:8,30  A:8,21
F: Krókur frá Efri-Rauðalæk M: Fiðla frá Tungu
Ræktandi: Guðlaugur Arason
Síðsumarsýning Gaddstaðaflötum
Sýnandi: Sigurður Sigurðarson
 
3. sæti
Bylting frá Akureyri  B: 7,79  H:8,45  A:8,19
F: Tígull frá Gígjarhóli M: Vænting frá Brúnastöðum
Ræktandi: Gunnlaugur Atli Sigfússon
Kynbótasýning Akureyri
Sýnandi: Bjarni Jónasson
 
7 vetra og eldri hryssur
 
1. sæti
Spilda frá Búlandi B:7,98  H:8,67  A: 8,39
F: Töfri frá Kjartansstöðum M: Skák frá Staðartungu
Ræktand: Ólafur Örn Þórðarson
Héraðssýning á Gaddstaðaflötum
Sýnandi: Sigurður Sigurðarson
 
2. sæti
Ugla frá Grund II  B:7,91  H:8,45  A:8,24
F: Aron frá Strandarhöfði M: Hremmsa frá Kjarna
Ræktandi: Þorsteinn Egilsson
Landsmót 2011 – Vindheimamelar
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson
 
3. sæti
Fruma frá Akureyri B:8,23  H:8,23  A:8,23
F: Hróður frá Refsstöðum M: Þruma frá Hvítárbakka 1
Ræktendur: Sandra Maria Marin og Ragnar Stefánsson
Héraðssýning á Vindheimamelum
Sýnandi: Mette Camilla Moe Mannseth
 
Hæst dæmda kynbótahrossið
aldursleiðrétt skv. viðmiðun Bændasamtaka Íslands
4 vetra stóðhesturinn Eldur frá Torfunesi B:8,46  H:8,30  A:8,37
F: Máttur frá Torfunesi M: Elding frá Torfunesi
Ræktandi: Ræktunarbúið Torfunesi
Héraðssýning á Vindheimamelum
Sýnandi: Mette Camilla Moe Mannseth
Tölt, vilji, fótagerð: 9,0
Brokk, fegurð í reið, prúðleiki: 9,5
 
 
Ræktunarbú – tilnefnd
• Grund II
• Komma
• Litla-Brekka
• Torfunes
• Ytri-Bægisá I
• Ytra-Dalsgerði
 
 
Ræktunarbú ársins
Ytri – Bægisá I
Stáli 8v. B 8,26 H 8,51 A 8,41 Sýnandi Þorvar Þorsteinsson
Drífa 5v. B 8,24 H 8,03 A 8,11 Sýnandi Þorvar Þorsteinsson
Stormur 5v. B 7,99 H 7,80 A 7,88 Sýnandi Þorvar Þorsteinsson
Ræktendur:
Haukur Sigfússon
Þorvar Þorsteinsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link