Aron frá Strandarhöfði mætir á Ístölt
Stóðhesturinn Aron frá Strandarhöfði mætir á Ístölt „Þeirra allra sterkustu“ og sýnir listir sínar. Óðssonurinn Aron hefur ekki komið fram í nokkur ár og ríkir því mikil eftirvænting að sjá klárinn en sýnandi hans verður Hinrik Bragason. Óður hefur hæst hlotið 8.54 í aðaleinkunn, þar af 8.75 fyrir hæfileika.
Auk Arons munu eftirfarandi stóðhestar koma fram:
– Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu
– Fróði frá Staðartungu
– Ketill frá Kvistum
– Kjerúlf frá Kollaleiru
– Klerkur frá Bjarnanesi
– Loki frá Selfossi
– Tenór frá Túnsbergi
Húsið opnar kl.19:00 og Ístöltið hefst kl.20:00.
Dagskrá og ráslistar verða kynntir á morgun, fimmtudag, fylgist vel með!