Titill hæst dæmdur á Mið-Fossum
Titill frá Skrúð. Mynd:Aðsend
Kynbótasýningu á Mið-Fossum lauk í gær með yfirlitssýningu. Alls voru það 22 hross sem mættu til sýningarinnar og hlutu 17 þeirra fullnaðardóm og 5 einungis sköpulagsdóm. Dómarar voru þeir Friðrik Már Sigurðsson og Jens Füchtenschnieder.
Sýning var í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og er einnig aðgengileg þar nú.
Titill frá Skrúð hæst dæmdur
Hæst dæmda hross sýningarinnar var fjögurra vetra gamall stóðhestur, Titill frá Skrúð. Ræktandi hans er Sigfús Kristinn Jónsson en eigandi er Björn Haukur Einarsson sem einnig sýndi hestinn. Faðir Titils er Sólfaxi frá Herríðarhóli og móðir er Pera frá Skrúð. Fyrir sköpulag hlaut hann 8,31, fyrir hæfileika 8,36 þar af 9,0 fyrir greitt stökk og samstarfsvilja.
| Hross á þessu móti | Sköpulag | Hæfileikar | Aðaleinkunn | Sýnandi | Þjálfari |
| IS2022135846 Titill frá Skrúð | 8.31 | 8.36 | 8.34 | Björn Haukur Einarsson | Björn Haukur Einarsson |
| IS2021236469 Snerting frá Laugalandi 1 | 8.39 | 8.3 | 8.33 | Björn Haukur Einarsson | Björn Haukur Einarsson |
| IS2020286861 Drottning frá Ásamýri | 8.19 | 8.39 | 8.32 | Páll Bragi Hólmarsson | |
| IS2020282655 Esja frá Austurkoti | 8.36 | 8.12 | 8.21 | Páll Bragi Hólmarsson | |
| IS2018235831 Villirós frá Laugavöllum | 8.01 | 8.3 | 8.2 | Hafþór Hreiðar Birgisson | Kristín Karlsdóttir |
| IS2018235850 Fiðla frá Skrúð | 8.01 | 8.28 | 8.18 | Björn Haukur Einarsson | Björn Haukur Einarsson |
| IS2019235750 Harka frá Múlakoti | 8.34 | 8.01 | 8.12 | Björn Haukur Einarsson | Björn Haukur Einarsson |
| IS2021135607 Hreppur frá Efri-Hrepp | 8.34 | 7.99 | 8.12 | Björn Haukur Einarsson | Björn Haukur Einarsson |
| IS2021282650 Una frá Austurkoti | 8 | 8.15 | 8.1 | Páll Bragi Hólmarsson | |
| IS2022282651 Birting frá Austurkoti | 7.96 | 8.12 | 8.06 | Páll Bragi Hólmarsson | |
| IS2019235321 Þjóðhildur frá Akrakoti | 7.73 | 7.95 | 7.88 | Reynir Aðalsteinsson | |
| IS2021235607 Garún frá Efri-Hrepp | 8.22 | 7.66 | 7.86 | Björn Haukur Einarsson | |
| IS2021284229 Fjarvör frá Fornusöndum | 8.16 | 7.63 | 7.82 | Leifur George Gunnarsson | |
| IS2021149701 Stjörnublakkur frá Snartartungu | 8.16 | 7.62 | 7.81 | Halldór Sigurkarlsson | |
| IS2021225432 List frá Ekru | 8.26 | 7.52 | 7.78 | Ingunn Birna Ingólfsdóttir | |
| IS2022156111 Bylur frá Hofi | 8.05 | 7.58 | 7.75 | Reynir Aðalsteinsson | |
| IS2021255174 Sjöfn frá Syðra-Kolugili | 7.94 | 7.63 | 7.74 | Leifur George Gunnarsson | |
| IS2021225205 Dikta frá Reykjavík | 7.67 | Marta Bára Guðmundsdóttir | Svavar Karl Guðmundsson | ||
| IS2019135332 Ljóni frá Byrgislæk | 8.26 | Leifur George Gunnarsson | |||
| IS2022236673 Mirra frá Borgarnesi | 8.61 | Björn Haukur Einarsson | Björn Haukur Einarsson | ||
| IS2022201463 Nadía frá Englahofi | 8.1 | Englahof ehf. | |||
| IS2019237877 Samba frá Hömluholti | 7.84 | Leifur George Gunnarsson |
Tinni slær heimsmet