Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti

Það var spennandi flugskeiðið í gegnum Svaðastaðahöllina í Meistaradeild KS í kvöld. Það leit lengi út að Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk ætluðu að landa sigri með tímann 4,62 sek. Þeir Agnar Þór Magnússon og Kvistur frá Kommu settu þá í fluggírinn í seinni sprettinum og fóru í gegn á 4,52 sek. Nýtt hallarmet en þeir Konráð og Kastor bættu hallarmetið í fyrra þegar þeir fóru í gegn á 4,61 sek.

Í þriðja sæti varð Þórarinn Eymundsson á Lukku frá Breiðholti, Gbr. á tímanum 4,78 sek. Dýrmæt stig fyrir Þórarinn sem var líklega að landa sigri í einstaklingskeppninni með þessum árangri. Mette Mannseth og Vera Evi Schneiderchen voru á undan honum fyrir flugskeiðið en náðu hvorugar í stig í greininni.

Lið Íbishóls var stigahæst í skeiðinu en þau Agnar, Konráð og Freyja Amble Gísladóttir kepptu fyrir liðið.

Hér fyrir neðan eru niðurstöðurnar úr flugskeiðinu

Flugskeið
Sæti Knapi Hross Tími
1 Agnar Þór Magnússon Kvistur frá Kommu 4,52
2 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 4,62
3 Þórarinn Eymundsson Lukka frá Breiðholti, Gbr. 4,78
4 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Spes frá Stóra-Hofi 4,90
5 Matthías Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi 4,95
6 Freyja Amble Gísladóttir Dalvík frá Dalvík 4,98
7 Kristófer Darri Sigurðsson Egla frá Hólum 4,98
8-9 Bjarni Jónasson Eðalsteinn frá Litlu-Brekku 4,99
8-9 Þórey Þula Helgadóttir Hrina frá Hólum 4,99
10 Daníel Gunnarsson Smári frá Sauðanesi 5,02
11 Kristján Árni Birgisson Sviðrir frá Reykjavík 5,09
12 Lilja Dögg Ágústsdóttir Stanley frá Hlemmiskeiði 3 5,11
13 Herdís Björg Jóhannsdóttir Gosi frá Staðartungu 5,12
14 Sigrún Rós Helgadóttir Gjöf frá Hofi á Höfðaströnd 5,14
15 Herjólfur Hrafn Stefánsson Tvistur frá Garðshorni 5,15
16 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá 5,17
17 Elvar Einarsson Gáski frá Varmalandi 5,21
18 Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu 5,21
19 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum 5,25
20 Björg Ingólfsdóttir Grímnir frá Þóroddsstöðum 5,27
21 Unnur Sigurpálsdóttir Elva frá Miðsitju 5,37
22 Atli Freyr Maríönnuson Elmar frá Staðarhofi 5,38
23 Ívar Örn Guðjónsson Buska frá Sauðárkróki 5,46
24 Sigurður Steingrímsson Gjafar frá Hrafnsstöðum 5,56
25 Þorsteinn Björnsson Fála frá Hólum 5,60
26 Vera Evi Schneiderchen Sturla frá Bræðratungu 5,68
27 Emma Thorlacius Númi frá Hólum 6,01
28 Elvar Logi Friðriksson Kuldi frá Skipaskaga 6,19
29-30 Mette Mannseth Vívaldi frá Torfunesi 0,00
29-30 Sigurður Heiðar Birgisson Tinna frá Ríp 0,00

Þórarinn og Hrímnir/Hestklettur sigurvegarar

Æsispennandi og skemmtilegu lokakvöldi í Meistaradeild KS í hestaíþróttum er lokið.

Þórarinn Eymundsson tók þetta á lokasprettinum og sigraði einstaklingskeppnina með 36 stig. Í öðru sæti varð Mette Mannseth með 33 stig og í því þriðja Vera Schneiderchen með 30 stig.

Lið Hrímnis/Hestkletts vann liðakeppnina eftir hörkubaráttu. Knapar í liðinu voru Þórgunnur Þórarinsdóttir, Vera Schneiderchen, Þórarinn Eymundsson, Matthías Sigurðsson og Kristján Árni Birgisson

Einstaklingskeppni

1. Þórarinn Eymundsson 36 stig

2. Mette Mannseth 33 stig

3. Vera Evi Schneiderchen 30 stig

4. Matthías Sigurðsson 26 stig

5. Agnar Þór Magnússon 25 stig

6. Þórey Þula Helgadóttir 22,5

7. Barbara Wenzl 22

7. Konráð Valur Sveinsson 22

9. Guðmar Freyr Magnússon 19

10. Herdís Björg Jóhannsdóttir 16

10. Freyja Amble Gísladóttir 16

 

 

 

Liðakeppni

1. Hrímnir/Hestklettur 440,5

2. Þúfur 410

3. Hofstorfan/550 362

4. Lífland 337

5. Íbishóll 274,5

6. StormRider 255,5

7. Bústólpi 215,5

8. Uppsteypa 211

9. Exar 178

Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu

Síðasta mótið í 1.deild Hringdu í hestaíþróttum fer fram laugardaginn 18. apríl á mótssvæði Sörla í Hafnarfirði og hefst mótið klukkan 10:00. Keppt verður í tveimur skeiðgreinum þ.e. gæðinga- og 100 metra skeiði. Mótið er keyrt samhliða skeiðmóti Samskipadeildinni – Áhugamannadeildar Spretts.

Mótið er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og verður dregið í afmælisleik Ástundar og EiðfaxaTV.

Gæðingaskeið

Á þátttökulistanum í gæðingaskeiði eru mörg pör sem hafa gert það gott í greininni. Páll Bragi Hólmarsson og Snjall frá Austurkoti eru ofarlega á stöðulista síðasta ár, þeir hlutu hæst einkunnina 7,96 á WR Íþróttamóti Geysis. Þá er  Sigvaldi Lárus Guðmundsson og Hildur frá Feti skráð til leiks en þau eru ríkjandi sigurvegarar í þessari grein í 1.deildinni, hlutu 7,63 í einkunn á síðasta tímabili. Ingibergur Árnason og Flótti frá Meiri-Tungu voru þá í þriðja sæti með 7,33 í einkunn. Þá hafa þau Jóhann Kr. Ragnarsson og Þórvör frá Lækjarbotnum verið á meðal allra stekustu para í gæðingaskeiði undanfarinn ár og verið í toppbaráttu á Íslands og Landsmótum. Þá hefur Heiða frá Skák, sem nú er setinn af Þórdísu Ingu Pálsdóttur, hefur gert það ákaflega gott í gæðingaskeiði m.a. með Eyrúnu Ýr Pálsdóttur sem knapa. Sama má segja um Bresa frá Efri-Hrepp sem Birna Olivia keppir á. Fleiri hesta og eða pör sem hafa náð góðum árangri mætti telja upp en spennandi verður að sjá hvernig knöpum tekst til í þessari krefjandi keppnisgrein.

Ráslisti
Friðdóra Friðriksdóttir Toppur frá Sæfelli
Siguroddur Pétursson Tign frá Hrauni
Ingibergur Árnason Flótti frá Meiri-Tungu 1
Þórdís Inga Pálsdóttir Heiða frá Skák
Rakel Katrín Sigurhansdóttir Blakkur frá Traðarholti
Hermann Arason Þota frá Vindási
Ólafur Þórisson Assa frá Árheimum
Haukur Tryggvason Lóa frá Ásbrú
Helgi Þór Guðjónsson Dimma frá Syðri-Reykjum 3
Hafþór Hreiðar Birgisson Möndull frá Halakoti
Katla Sif Snorradóttir Gimsteinn frá Víðinesi 1
Ólöf Rún Guðmundsdóttir Hraundís frá Selfossi
Haukur Bjarnason Þórfinnur frá Skáney
Birna Olivia Ödqvist Bresi frá Efri-Hrepp
Hlynur Guðmundsson Kraftur frá Svanavatni
Reynir Örn Pálmason Lína frá Miklaholtshelli
Benedikt Ólafsson Tobías frá Svarfholti
Jóhann Kr. Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum
Frederica Fagerlund Salómon frá Efra-Núpi
Anna Valdimarsdóttir Sólon frá Bræðraá
Ævar Örn Guðjónsson Elja frá Óðinstorgi
Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti
Sigvaldi Lárus Guðmundsson Hildur frá Feti
Thelma Dögg Tómasdóttir Sirkus frá Torfunesi
100 metra skeið

100 metra skeið er ákfalega skemmtileg keppnisgrein þar sem eingöngu tímataka sker úr um sigurvegara og verða knapar því að tefla djarft. Ingibergur Árnason og Sólveig eru frábært keppnispar og var þeirra besti tími á síðasta ári 7,47 sekúndur. Friðdóra Friðriksdóttir er á Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði, en hennar besti tími á síðasta ári var 7,64 sekúndur. Þórdís Inga Pálsdóttir er á Friðsemd frá Kópavogi sem er öskufljót og hefur farið á undir 7,50 sekúndum í 100 metra skeiði. Benedikt Ólafsson og Vonardís frá Ólafshaga voru ofarlega í 100 metra skeiði á þessu sama móti árið 2025 á 7,83 sekúndum. Katla Sif Snorradóttir teflir fram Djarfi frá Litla-Hofi, Sara Dís systir Kötlu hefur gert það gott á honum og var þeirra besti tími 7,70 árið 2025. Páll Bragi og Snjall frá Austurkoti gerðu það mjög gott í 100 metra skeiði á síðasta ári og unnu þessa grein á Suðurlandsmóti árið 2025 á tímanum 7,61. Eins og lesa má úr þessum upplýsingum eru allar líkur á að við fáum að sjá snarpa og fallega skeiðspretti í 100 metra skeiði 1.deildar Hringdu.

Ráslisti í 100 metra skeiði
Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Flæðir frá Stykkishólmi
Friðdóra Friðriksdóttir Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði
Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ
Haukur Tryggvason Lóa frá Ásbrú
Ólafur Þórisson Edda frá Túnprýði
Eysteinn Tjörvi Kristinsson Gná frá Borgarnesi
Birna Olivia Ödqvist Salka frá Fákshólum
Þórdís Inga Pálsdóttir Friðsemd frá Kópavogi
Rakel Katrín Sigurhansdóttir Blakkur frá Traðarholti
Thelma Dögg Tómasdóttir Von frá Ási 1
Hulda Sveinbjörnsdóttir Amalía frá Þjóðólfshaga 1
Anna Valdimarsdóttir Jökull frá Stóru-Ásgeirsá
Katla Sif Snorradóttir Djarfur frá Litla-Hofi
Hlynur Guðmundsson Stólpi frá Ási 2
Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir Klaustri frá Hraunbæ
Frederica Fagerlund Salómon frá Efra-Núpi
Jóhann Kr. Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum
Vilborg Smáradóttir Klókur frá Dallandi
Reynir Örn Pálmason Lína frá Miklaholtshelli
Benedikt Ólafsson Vonardís frá Ólafshaga
Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti
Helgi Þór Guðjónsson Kolbeinn frá Hrafnsholti
Sigvaldi Lárus Guðmundsson Hildur frá Feti
Þorvaldur Logi Einarsson Lukka frá Syðra-Langholti

 

Thelma Dögg sigrar töltkeppnina í Meistaradeild KS

Lokamótið í Meistaradeild KS er nú í fullum gangi í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Spennan er mikil í bæði einstaklings- og liðakeppni og ráðast leikar í flugskeiði í gegnum höllina sem er við það að hefjast. Í einstaklingskeppninni er Mette nú í fyrsta sæti með 33 stig, Vera í öðru sæti með 30 stig og Þórarinn í því þriðja með 28 stig.

Í töltkeppninni var það Thelma Dögg Tómasdóttir sem leiddi að lokinni forkeppni með 7,23 í einkunn, í öðru sæti var Matthías Sigurðsson á Tuma frá Jarðbrú með 7,20 og í því þriðja Þorsteinn Björn Einarsson á Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd með 7,13. Til úrslita riðu einni þau Mette Mannset á Grímari frá Þúfum sem hlaut 6,97 í forkeppni og Þórarinn Eymundsson á Náttfara frá Varmalæk með 6,93, þau tvö eru í harðri keppni í einstaklingsbaráttu og eru líkleg til sigurs en þess til viðbótar á Vera Evi Schneiderchen ennþá von á því að sigra en hún hefur leitt einstaklingskeppnina frá fyrsta móti.

Í A-úrslitum breyttist röð knapanna ekki og fór svo að Themla Dögg vann með 7,83 í úrslitum.

Stigahæsta liðið í tölti var lið Hrímnis/Hestkletts

Niðurstöður úr tölti
Tölt T1
Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík 7,23
2 Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú 7,20
3 Þorsteinn Björn Einarsson Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd 7,13
4 Mette Mannseth Grímar frá Þúfum 6,97
5 Þórarinn Eymundsson Náttfari frá Varmalæk 6,93
6 Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili 6,90
7 Ívar Örn Guðjónsson Dofri frá Sauðárkróki 6,83
8-10 Herdís Björg Jóhannsdóttir Svörður frá Vöðlum 6,77
8-10 Barbara Wenzl Loftur frá Kálfsstöðum 6,77
8-10 Guðmar Freyr Magnússon Snerpa frá Hólmum 6,77
11 Þórey Þula Helgadóttir Hrafna frá Hvammi I 6,73
12-13 Vera Evi Schneiderchen Feykir frá Selfossi 6,63
12-13 Björgvin Helgason Kóngur frá Gunnarsstöðum 6,63
14 Erlingur Ingvarsson Dimmalimm frá Hrísaskógum 6,60
15 Björg Ingólfsdóttir Hákon frá Vatnsleysu 6,57
16 Þorsteinn Björnsson Ugla frá Hólum 6,50
17-18 Kristófer Darri Sigurðsson Ósk frá Narfastöðum 6,43
17-18 Egill Már Þórsson Blæja frá Króksstöðum 6,43
19-20 Magnús Bragi Magnússon Jósteinn frá Íbishóli 6,40
19-20 Katrín Ösp Bergsdóttir Eldur frá Lundi 6,40
21 Elvar Logi Friðriksson Teningur frá Víðivöllum fremri 6,37
22 Julian Veith Fáni frá Sperðli 6,30
23-24 Sigurður Steingrímsson Rún frá Koltursey 6,23
23-24 Karítas G. Thoroddsen Tenór frá Miðhúsum 6,23
25 Sigurður Heiðar Birgisson Fagri frá Skeiðvöllum 6,20
26 Unnur Sigurpálsdóttir Þröstur frá Kolsholti 2 6,13
27 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kolgríma frá Morastöðum 5,77
28 Agnar Þór Magnússon Birta frá Íbishóli 5,57
B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6-7 Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili 7,28
6-7 Ívar Örn Guðjónsson Dofri frá Sauðárkróki 7,28
8 Barbara Wenzl Loftur frá Kálfsstöðum 7,11
9 Herdís Björg Jóhannsdóttir Svörður frá Vöðlum 7,00
10 Guðmar Freyr Magnússon Snerpa frá Hólmum 6,72
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík 7,83
2 Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú 7,78
3 Þorsteinn Björn Einarsson Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd 7,72
4 Þórarinn Eymundsson Náttfari frá Varmalæk 7,56
5 Mette Mannseth Grímar frá Þúfum 7,44

Dregið í rásröð fyrir skeiðmót 1.deildar Hringdu

Lokamótið í 1.deild Hringdu fer fram á morgun, laugardaginn, 18. apríl, þegar keppt verður í gæðingaskeiði og 100 metra skeiði.

Mótið hefst klukkan 10:00 á morgun og er það Fóðurblandan sem er styrktaraðili dagsins. Mótið fer fram á Sörlastöðum í Hafnarfirði samhliða skeiðmótinu í Samskipadeildinni – Áhugamannadeild Spretts.

Á morgun samhliða mótinu verður svo dregið í beinni útsendingu í afmælisleik Ástundar og EiðfaxaTV en lesa má meira um hann með því að smella hér.

Arnar Bjarki Sigurðarson og Mummi í Ástund sjá um að draga og birtist það hér í þessari frétt klukkan 20:00 í kvöld.

Gæðingaskeið í Samskipadeildinni – Áhugamannadeild Spretts

Síðasta grein í Samskipadeildinni – Áhugamannadeild Spretts fer fram á morgun, laugardaginn 18.apríl, þegar keppt er í gæðingaskeiði. Mótið fer fram á Sörlastöðum í Hafnarfirði og fer fram samhliða skeiðmóti 1.deildar Hringdu. Það er Útfarastofa Íslands sem er styrktaraðili greinarinnar.

Samkvæmt heimildum Eiðfaxa byrjar veislan á Sörlastöðum klukkan 10:00 þegar gæðingaskeið í 1.deild Hringdu fer fram, í kjölfarið keppa svo knapar í Samskipadeildinni í gæðingaskeiði og þessum spennandi skeiðdegi lýkur á keppni í 100 metra skeiði í 1.deild Hringdu. Fyrirhugað er að gæðingaskeið Samskipadeildar hefjist klukkan 12:30.

Loahóf fyrir báðar þessar deildir fer svo fram í Arnarfelli – Veislusal Spretts þar sem sigurlið og einstaklingar verða krýndir.

Allur keppnisdagurinn er að sjálfsögðu sýndur í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Ráslisti gæðingaskeið Samskipadeild
Nr. Knapi Lið Hestur
1 Guðlaug Jóna Matthíasdóttir Tommy Hilfiger Hrauna frá Eylandi
2 Kristinn Karl Garðarsson Nýsmíði Tenór frá Hólabaki
3 Eyþór Jón Gíslason Vestlendingarnir Spurning frá Spágilsstöðum
4 Aníta Rós Róbertsdóttir Trausti Brekka frá Litlu-Brekku
5 Rúnar Freyr Rúnarsson Réttverk Títanía frá Hellu
6 Árni Geir Norðdahl Eyþórsson Sveitin Svikari frá Litla-Laxholti
7 Anna Vilbergsdóttir Vörðufell Galdra-Nótt frá Vestra-Fíflholti
8 Auður Stefánsdóttir Frosti Ósk frá Vindási
9 Þórunn Kristjánsdóttir Fossvélar Týr frá Hólum
10 Eyrún Jónasdóttir Hótel Rangá Ninna frá Lyngholti
11 Sigurður Jóhann Tyrfingsson Rembrandt Rut frá Vöðlum
12 Patricia Ladina Hobi Stafholthestar Elliði frá Hrísdal
13 Elías Árnason Lið Spesíunnar Blíða frá Árbæ
14 Rúnar Bragason Sveitin Tryggur frá Selfossi
15 Erla Guðný Gylfadóttir Fossvélar Ása frá Fremri-Gufudal
16 Rósa Valdimarsdóttir Réttverk Lás frá Jarðbrú 1
17 Stefán Bjartur Stefánsson Frosti Rangá frá Árbæjarhjáleigu II
18 Andri Ingason Vörðufell Katla frá Eylandi
19 Ámundi Sigurðsson Vestlendingarnir Gleði frá Miklagarði
20 Sarah Maagaard Nielsen Hótel Rangá Kiljan frá Miðkoti
21 Gunnar Eyjólfsson Stafholthestar Kristall frá Litlalandi Ásahreppi
22 Bjarni Sigurðsson Trausti Týr frá Miklagarði
23 Aníta Eik Kjartansdóttir Nýsmíði Dynur frá Vatnsleysu
24 Sigurbjörn Eiríksson Tommy Hilfiger Seifur frá Miklagarði
25 Erna Jökulsdóttir Rembrandt Myrká frá Lækjarbakka
26 Sverrir Sigurðsson Lið Spesíunnar Elva frá Staðarhofi
27 Arnhildur Halldórsdóttir Réttverk Perla frá Lækjarbakka
28 Halldóra Sif Guðlaugsdóttir Nýsmíði Litla-Stjarna frá Hvítárholti
29 Inga Kristín Sigurgeirsdóttir Frosti Refur frá Lækjarbotnum
30 Steingrímur Jónsson Hótel Rangá Snæbjört frá Austurkoti
31 Theódóra Þorvaldsdóttir Fossvélar Urla frá Pulu
32 Arna Hrönn Ámundadóttir Vestlendingarnir Tjörvi frá Tvennu
33 Guðmundur Ásgeir Björnsson Sveitin Gnýr frá Gunnarsholti
34 Sigurður V. Ragnarsson Rembrandt Alda frá Skipaskaga
35 Ragnheiður Jónsdóttir Lið Spesíunnar Höfði frá Bakkakoti
36 Kolbrún Kristín Birgisdóttir Vörðufell Hugar frá Brekkum
37 Darri Gunnarsson Trausti Atli frá Kirkjubæ

Barist til þrautar í Meistaradeild KS

Lokamót Meistaradeildar KS fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki í kvöld, föstudaginn 17, aprí, hefst keppni klukkan 18:00. Fóðurblandan býður áhorfendum frítt í sal og mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Barátta á toppnum í heildarstigakeppni

Keppt er bæði í tölti og flugskeiði í gegnum höllina og sé tekið mið af ráslista verður sú keppni spennandi og það sama má segja um einstaklings- og liðakeppni þar sem mjótt er á munum. Í einstaklingskeppni leiðir Vera Evi Schneiderchen með 30 stig en skammt á eftir henni er Mette Mannseth með 27 stig. Í þriðja sætinu er svo Þórarinn Eymundsson með 21 stig. Mörg stig eru í boði og því gætu aðrir knapar sem neðar eru blandað sér í toppbaráttu ef þessum knöpum tekst ekki að ná sér í stig. Í liðakeppninni er baráttan um sigur á milli liðs Þúfna, sem leiðir með 318 stig og lið Hrímnis/Hestkletts sem er í öðru sæti 8 stigum á eftir Þúfum með 310 stig. Það verður áhugavert að sjá hvernig til tekst hjá liðsmönnum þessara liða að næla í mikilvæg stig.

Staðan í liðakeppni
  1. Þúfur 318 stig
  2. Hrímnir/Hestklettur 310 stig
  3. Hofstorfan/550 266,5 stig
  4. Lífland 323 stig
  5. íbishóll 186,5
  6. Storm Rider 168,5 stig
  7. Bústólpi 151,5 stig
  8. Uppsteypa 151 stig
  9. Exar 144,5 stig
Staðan í einstaklingskeppni – 10 efstu
  1. Vera Evi Schneiderchen 30 stig
  2. Mette Mannseth 27 stig
  3. Þórarinn Eymundsson 21 stig
  4. Þórey Þula Helgadóttir 20 stig
  5. Barbara Wenzl 18 stig
  6. Guðmar Freyr Magnússon 18 stig
  7. Herdís Björg Jóhannsdóttir 14 stig
  8. Lilja Dögg Ágústsdóttir 13 stig
  9. Agnar Þór Magnússon 13 stig
  10. Kristján Árni Birgisson 12,5 stig

 

Í töltkeppni síðasta árs í Meistaradeild KS voru það þau Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson sem voru í fyrsta og öðru sæti. Metta sigraði þá á Hannibal frá Þúfum með 7,94 í einkunn og Þórarinn varð annar á Náttfara frá Varmalæk með 7,72. Metta mætir nú á öðrum hesti úr eigin ræktun, Grímari frá Þúfum, en Þórarinn er á Náttfara. Af öðrum knöpum sem voru í A-úrslitum í fyrra er enginn þeirra á meðal þátttakenda nú. Elvar Einarsson er skráður á Muna frá Syðra-Skörðugili en þeir unnu B-úrslitin árið 2025 með 7,39. Vera er skráð á hesti sínum Feyki frá Selfossi sem hefur skilað henni mörgum stigum og meðal annars sigri í fjórgangi. Auk undantalinna knapa eru margir flottir tölthestar skráðir til leiks sem hafa eða gætu gert það gott í töltkeppni. Alls er það 28 pör sem keppa í töltkeppni þar af eru tveir Villikettir, fyrir lið Exar og Líflands, auk uppboðsknapa sem er Unnur Sigurpálsdóttir á Þresti frá Kolsholti II.

Ráslisti í tölti
Knapi Hestur Lið
Elvar Logi Friðriksson Teningur frá Víðivöllum fremri Uppsteypa
Sigurður Steingrímsson Rún frá Koltursey Exar
Þórarinn Eymundsson Náttfari frá Varmalæk Hrímnir /Hestklettur
Egill Már Þórsson Blæja frá Króksstöðum Bústólpi
Mette Mannseth Grímar frá Þúfum Þúfur
Kristófer Darri Sigurðsson Ósk frá Narfastöðum Hofstorfan /550
Agnar Þór Magnússon Birta frá Íbishóli Íbishóll
Ívar Örn Guðjónsson Dofri frá Sauðárkróki StormRider
Erlingur Ingvarsson Dimmalimm frá Hrísaskógum Lífland
Vera Evi Schneiderchen Feykir frá Selfossi Hrímnir /Hestklettur
Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili StormRider
Björg Ingólfsdóttir Hákon frá Vatnsleysu Lífland
Björgvin Helgason Kóngur frá Gunnarsstöðum Bústólpi
Sigurður Heiðar Birgisson Fagri frá Skeiðvöllum Íbishóll
Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kolgríma frá Morastöðum Exar
Þórey Þula Helgadóttir Hrafna frá Hvammi I Hofstorfan /550
Herdís Björg Jóhannsdóttir Svörður frá Vöðlum Uppsteypa
Barbara Wenzl Loftur frá Kálfsstöðum Þúfur
Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú Hrímnir /Hestklettur
Karítas G. Thoroddsen Tenór frá Miðhúsum Bústólpi
Þorsteinn Björn Einarsson Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd Hofstorfan /550
Villiköttur Exar
Guðmar Freyr Magnússon Snerpa frá Hólmum Þúfur
Magnús Bragi Magnússon Jósteinn frá Íbishóli Íbishóll
Uppboðssæti-Unnur Sigurpálsdóttir Þröstur frá Kolsholti 2
Þorsteinn Björnsson Ugla frá Hólum Uppsteypa
Villiköttur Lífland
Julian Veith Fáni frá Sperðli StormRider
Skeiðkeppni

Í skeiðinu getur svo allt gerst en óhætt er að segja að Konráð Valur á Kastori frá Garðshorni sé sigurstranglegastur, vann þessa grein m.a. í fyrra. Þórgunnur Þórarinsdóttir varð í þriðja sæti í þessari keppni í fyrra á Sviðri frá Reykjavík en nú keppir á honum Kristján Árni Birgisson. Þá eru fljótir skeiðhestar sem náð hafa góðum árangir á landsvísu skráðir til leika líkt og Tvistur frá Garðshorni, sem náði besta tíma ársins í 100 metra skeiði á síðast ári settan hér á landi, þá með Áróru Heiðbjörtu sem knapa en nú er á honum Herjólfur Hrafn Stefánsson. Agnar Þór er á Kvisti frá Kommu sem hefur náð frábærum árangri í skeiðgreinum það sama má segja um Mette Mannseth á Vívaldi frá Torfunesi, Daníel Gunnarsson á Smára frá Sauðanesi og Matthías Sigurðsson á Gnúpi frá Dallandi, svo dæmi séu tekinn.

Ráslisti í skeiði
Flugskeið 100m P2 Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
1 Matthías Sigurðsson Gnúpur frá Dallandi Hrímnir /Hestklettur
2 Uppboðssæti-Þórey Þula Helgadóttir Hrina frá Hólum
3 Björg Ingólfsdóttir Grímnir frá Þóroddsstöðum Lífland
4 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá Þúfur
5 Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu Bústólpi
6 Atli Freyr Maríönnuson Elmar frá Staðarhofi Hofstorfan /550
7 Freyja Amble Gísladóttir Dalvík frá Dalvík Íbishóll
8 Elvar Logi Friðriksson Kuldi frá Skipaskaga Uppsteypa
9 Bjarni Jónasson Eðalsteinn frá Litlu-Brekku StormRider
10 Emma Thorlacius Númi frá Hólum Exar
11 Kristján Árni Birgisson Sviðrir frá Reykjavík Hrímnir /Hestklettur
12 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Íbishóll
13 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Spes frá Stóra-Hofi Lífland
14 Sigrún Rós Helgadóttir Gjöf frá Hofi á Höfðaströnd Hofstorfan /550
15 Daníel Gunnarsson Smári frá Sauðanesi Þúfur
16 Uppboðssæti-Sigurður Heiðar Birgisson Tinna frá Ríp
17 Herjólfur Hrafn Stefánsson Tvistur frá Garðshorni Bústólpi
18 Þorsteinn Björnsson Fála frá Hólum Uppsteypa
19 Ívar Örn Guðjónsson Buska frá Sauðárkróki StormRider
20 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum Exar
21 Lilja Dögg Ágústsdóttir Stanley frá Hlemmiskeiði 3 Lífland
22 Uppboðssæti-Vera Evi Schneiderchen Sturla frá Bræðratungu
23 Elvar Einarsson Gáski frá Varmalandi StormRider
24 Unnur Sigurpálsdóttir Elva frá Miðsitju Bústólpi
25 Herdís Björg Jóhannsdóttir Gosi frá Staðartungu Uppsteypa
26 Þórarinn Eymundsson Lukka frá Breiðholti, Gbr. Hrímnir /Hestklettur
27 Kristófer Darri Sigurðsson Egla frá Hólum Hofstorfan /550
28 Sigurður Steingrímsson Gjafar frá Hrafnsstöðum Exar
29 Agnar Þór Magnússon Kvistur frá Kommu Íbishóll
30 Mette Mannseth Vívaldi frá Torfunesi Þúfur

 

Allir hestaunnendur eru hvattir til að fylgjast með lokamóti Meistaradeildar KS hvort sem það er í sal eða í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

 

Kolbrún Sif og lið Hjarðartúns sigurvegarar í tölti

Keppni í tölti T1 í Meistaradeild Ungmenna og Topreiter fór fram sunnudaginn 12.apríl í glæsilegri aðstöðu Sörlafélaga. Alls mættu til leiks 36 sterk pör og var stemningin góð. Skipulag var til fyrirmyndar, knapar létu ekki bíða eftir sér og sýndu fágaða reiðmennsku. Hestasjoppan styrkti Tölt og fengu efstu 3 sæti fóðurpoka frá þeim, og er þeim þakkað fyrir stuðninginn.

Eftir forkeppni leiddu þau Elva Rún Jónsdóttir og Goði frá Garðabæ með 7.30. Fast á hæla þeirra komu Kolbrún Sif Sindradóttir og Hallsteinn frá Hólum með einkunnina 7,27. í þriðja sæti eftir forkeppni komu þeir Ragnar Snær Viðarsson og Bylur frá Kvíarhóli með 7,13 í einkunn.

Í A-úrslitum var mikið jafnræði meðal knapa og var það ekki fyrr en eftir yfirferð sem úrslit urðu ljós. Það fór svo að Kolbrún Sif og Hallsteinn unnu með einkunnina 7,78. í öðru sæti komu þau Elva Rún og Goði með einkunnina 7,72 og í þriðja komu þeir Ragnar Snær og Bylur með einkunnina 7,61.

Niðurstöður A-úrslit

Kolbrún Sif Sindradóttir. – Hallsteinn frá Hólum 7,78 (Lið Helgatún/Hestaval)
Elva Rún Jónsdóttir – Goði frá Garðabæ – 7,72 ( Lið Hjarðartúns)
Ragnar Snær Viðarsson – Bylur frá Kvíarhóli 7,61 ( Lið Kastalabrekka)
Guðný Dís Jónsdóttir – Hraunar frá Vorsabæ 2 7,0 – ( Lið Hjarðartún)
Svandís Aitken Sævarsdóttir – Eik frá Stokkseyri – 6,94 ( Lið Helgatún/Hestavals)

Niðurstöður B- úrslit

Eva Kærnested – Logi frá Lerkiholti 7,78 ( Lið Miðás/Miklholt)
Lilja Rún Sigurjónsdóttir – Styrkur frá Skák 7,0 ( Lið Miðás/Miklholts)
Sara Dís Snorradóttir – Sæmar frá Stafholti ( 6,61 ( Lið Miðás/Miklholt)
Anika Hrund Ómarsdóttir – Sólmyrkva frá Álfhólum 6,56 ( Lið Holtsmúla)
Hildur María Jóhannesdóttir – Viðar frá Klauf – 6,39 ( Lið Brekka/Einhamar)

Mjótt var á munum í liðakeppninni eftir töltið en fór svo að lið Hjarðartúns var stigahæst með 84,5 stig , en aðeins munaði hálfu stigi á liðinu á eftir þeim, lið Miðás/Miklholt með 84.stig.

Lið Hjarðartúns var stigahæsta liðið í tölti

Niðurstaða liðakeppni í töltinu
Hjarðartún – 84,5 stig
Miðás/Miklholt – 84.stig
Helgatún/Hestaval – 81.stig
Kastalabrekka – 75.stig
Holtsmúli – 50 stig
Bobcat – 47,5 stig
Husky Iceland/Réttverk – 44,5 stig.
Hestvit/Lækjarbrekka – 39.stig
Armar/Ellert Skúlason – 32.stig
Grindjánar – 21.stig
Einhamar/Brekka – 0

Skeiðfélagið Náttfari endurvakið

Skeiðfélagið Náttfari, sem starfar norðan heiða, hefur verið endurvakið af miklum krafti. Félagið blæs til sóknar á komandi sumri með metnaðarfullri mótaröð þar sem keppt verður á þremur stöðum á Norðurlandi. Hluti af mótaröðinni er stigakeppni um nýjan farandsbikar sem gefinn er til minningar um Björn Þorsteinsson.

Skeiðfélagið Náttfari á sér sögu aftur til ársins 2002, en þá var félagið stofnað til að efla skeiðíþróttina á Norðurlandi. Eftir nokkur hlé í starfseminni er nú kominn nýr kraftur í hópinn. „Nú eru margir öflugir menn komnir hérna á svæðið fyrir norðan til viðbótar við þá sem fyrir voru og þann kraft ætlum við að nýta til að fara aftur af stað,“ segir Gestur Júlíusson, einn af forsvarsmönnum félagsins.

Stuðningsafl við hestamannafélögin

Náttfari er starfrækt sem deild innan Hestamannafélagsins Léttis á Akureyri og er hugsað sem stuðningsfélag við hestamannafélögin fyrir norðan, svipað og Skeiðfélagið starfar með Sleipni á Suðurlandi. „Markmiðið var og er að efla þátttöku í skeiðgreinum og hjálpa knöpum hér að ná meiri árangri,“ útskýrir Gestur. Hann segir nafn félagsins eiga skýra skírskotun í hinn þekkta flugagæðing Náttfara frá Ytra-Dalsgerði.

Keppt um minningarbikar Björns Þorsteinssonar

Mótaröðin í sumar samanstendur af sex mótum þar sem keppt verður í 250 m, 150 m og 100 m skeiði. Verðlaunað verður fyrir efstu þrjú sætin í hverri grein á hverju móti, en samhliða verður stigakeppni yfir allt sumarið.

Stigahæsti knapi mótaraðarinnar hlýtur sérstakan farandsbikar sem gefinn er af Þorsteini Björnssyni, til minningar um föður hans, Björn Þorsteinsson.

Björn var hæfileikaríkur hestamaður og fyrirmynd margra í skeiðreiðmennsku. Hann ræktaði þá meðal annars hinn kunna skeiðhest Eitil frá Akureyri og okkur langaði að halda minningu hans á lofti,“ segir Gestur.

Dagskrá sumarsins: Sex mót á þremur stöðum

Mótin verða haldin á Akureyri, Dalvík og á Hólum í Hjaltadal. Gestur hvetur knapa til að láta ekki sitt eftir liggja: „Ég hvet alla knapa hér fyrir norðan til að koma sér upp skeiðhestum fyrir sumarið og taka þátt í mótum okkar“  Segir Gestur að lokum og horfir björtum augum fram á sumarið.

Hér má sjá hugaðar dagsetningar mótaraðarinnar:

1. Skeiðleikar: Hólar í Hjaltadal – 20.-22. maí

2. Skeiðleikar: Akureyri – 5. júní

3. Skeiðleikar: Akureyri – 12. júní

4. Skeiðleikar: Akureyri – 20. júní

5. Skeiðleikar: Akureyri – 6.-7. ágúst

6. Skeiðleikar: Dalvík – 21. ágúst

 

Reynir og lið Hergils/Exporthesta sigurvegarar Vesturlandsdeildar

Þriðjudaginn 14 apríl fór fram síðasta keppnin í Vesturlandsdeildinni á þessum vetri. Keppt var í tveimur greinum, tölti T1 og skeiði í gegn um Faxaborg. Tvær greinar af fimm og mikið I húfi, enda mörg stig í boði, bæði fyrir liðin og einstaklinga. 30 knapar voru skráðir til leiks í tölti T1 og 26 í skeiðinu.

Í tilkynningu mótshaldar þótti keppnin fara vel fram í hvívetna og sáust mörg góð tilþrif, bæði á tölti og á skeiði.

Úrslitin í tölti að loknum A úrslitum voru eftirfarandi:
Reynir Örn Pálmason og Alfa f. Margrétarhofi 6,94 – Hergill/Exporthestar
Benjamín Sandur Ingólfsson og Áki f. Hurðarbaki 6,72 – villiköttur fyrir Berg
Herdís Lilja Björnsdóttir og Drottning f. Íbishóli 6,67 – Mýrdalur
Siguroddur Pétursson Sól f. Söðulsholti 6,67 – Kidka/Söðulsholt/Hestakofinn
Þorgeir Ólafsson og Kór f. Kálfholti 2 2,0 – Hestaland

Stigahæsta liðið í tölti T1 vqr lið Hergils/Exporthesta með 49 stig – liðsstjóri Lárus Ástmar Hannesson.

Í skeiði í gegn um Faxaborg voru niðurstöður þessar eftir æsispennandi keppni:
Þorvaldur Logi Einarsson og Lukka f. Syðra-Langholti 4,86 sek. – villiköttur fyrir Kidka/Söðulsholt/Hestakofinn.
Sigurður Sigurðarson og Tromma f. Skúfslæk 4,92 sek. – villiköttur f. Hergil/Exporthesta
Þorgils Kári Sigurðsson og Flugdís f. Kolsholti 3 4,99 sek. – Berg
Guðmar Freyr Magnússonog Gljásteinn f. Íbishóli 5,05 sek. – Berg
Þorgeir Ólafsson og Grunur f. Lækjarbrekku 2 5,10 sek. – Hestaland

Stigahæsta liðið í skeiðinu var Kidka/Söðulsholt/Hestaland með 46 stig – liðsstjóri Inga Dís Víkingsdóttir.

Stigahæsti einstaklingurinn að afloknum fimm greinum var Reynir Örn Pálmason með 37 stig. Næstir komu Þorgeir Ólafsson með 34 stig og Siguroddur Pétursson með 27,5 stig.

Reynir Örn Pálmason var stigahæsti knapi Vesturlandsdeildar

Stigahæsta lið Vesturlandsdeildarinnar í vetur var lið Hergils/Exporthesta með 209,5 stig – liðsstjóri Lárus Ástmar Hannesson. Í öðru sæti var lið Hestalands með 205 stig – liðsstjóri Guðmar Þór Pétursson og í því þriðja var lið Bergs með 201, 5 stig – liðsstjóri Jón Bjarni Þorvarðarson.

Stjórnin þakkar öllum þeim keppendum sem tóku þátt í keppnum deildarinnar í vetur fyrir þátttökuna og þakkar sérstaklega öllum þeim sem komu að margvíslegum störfum fyrir deildina meðan á mótum stóð.

Deildin naut þess að hafa á að skipa öflugu og samhentu liði sjálfboðaliða sem með framlagi sínu sáu til þess að hlutir gengu vel og örugglega fyrir sig.