7.000 manns mættu á Landsmótið
Ásmundur Ernir og Hlökk settu einkunna met í tölti Mynd: Kolla Gr.
Landsmóti hestamannafélaga á Hólum lauk á laugardagskvöldið með úrslitakeppni í A flokki. Síðustu Landsmótsgestir er að tía sig heim úr Hjaltadalnum en mikill vindur var á laugardag og sunnudag og biðu því nokkrir með heimferð þar til í dag.
7000 manns á mótinu
Samkvæmt forsvarsmönnum mótsins voru 7.000 manns mættir í Hjaltadalinn en stærsti hópurinn var Íslendingar og á eftir þeim komu Þjóðverjar, Svíar, Danir og Bandaríkjamenn. Reiknað var með rúmlega 7.500 til 8.000 gestum og var þetta í þriðja sinn sem Landsmót var haldið á Hólum.
Mótið tókst með ágætum þó að veðrið hafi aðeins verið að gera mótshöldurum erfitt fyrir en það virðist fylgja Landsmótum að veðurguðirnir eru þeim ekki alltaf hliðhollir.
Níu Landsmótssigurvegarar
Það voru átta knapar og níu hross sem bættust í hóp Landsmótssigurvegara. Tveir knapar voru mætir sem titilverjendur, Viktoría Huld í barnaflokki og Konráð Valur í báðum kappreiða greinunum, og vörðu þau bæði titil sinn. Ásmundur Ernir og Hlökk settu einkunna met í tölti og unnust margir fræknir sigrar en hér fyrir neðan eru Landsmótssigurvegarar ársins 2026:
- A flokkur – Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Hilmarsson 9.13
- B flokkur – Kór frá Skálakoti og Jakob Svavar Sigurðsson 9.19
- Ungmennaflokkur – Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Grettir frá Hólum 8.87
- Unglingaflokkur – Gabríel Liljendal Friðfinnsson og Ólsen frá Egilsá 8.80
- Barnaflokkur – Viktoría Huld Hannesdóttir og Þinur frá Enni 9.06
- Tölt T1 – Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði 9.78
- 250 m. skeið – Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 22,18 sek
- 150 m. skeið – Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 13,84 sek.
- 100 m. skeið – Eyrún Ýr Pálsdóttir og Friðsemd frá Kópavogi 7,46 sek.
Tvær sýningargreinar voru á mótinu A flokkur ungmenna og B flokkur áhugamanna. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Kalsi frá Þúfum unnu A flokk ungmenna og B flokk áhugamanna vann Heiður frá Eystra-Fróðholti og Hannes Sigurjónsson.
Landsmótið í beinni á EiðfaxaTV
Landsmótið var sýnt í beinni á EiðfaxaTV en áhugasamir geta en horft á allt það sem gerðist á mótinu inn á EiðfaxaTV og verður aðgengilegt inn á streymisveitunni.
7.000 manns mættu á Landsmótið
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars