82 stóðhestar á LM2012-
Nú þegar vorsýningum er lokið hér á landi er gaman að skoða hvaða hross standa efst í hverjum flokki. Mikil breidd er af góðum hrossum, en nú kemur hæst dæmdi stóðhesturinn úr 6.vetra flokki stóðhesta, en það er Kraftssonurinn Hrannar frá Flugumýri II með 8,85 í aðaleinkunn. Flugumýri II á efsta hest í bæði 6.vetra og 7.vetra og eldri sem má teljast frábær árangur.
Alls hafa 82 stóðhestar náð Landsmótslágmörkum en flestir eru í 5.vetra flokki alls 30, 21 stóðhestur í 6.vetra flokki 17 hestar í elsta flokki og einungis 14 hestar í 4.vetra flokki.
Á landsmóti 2011 voru alls 110 stóðhestar sem mættu til leiks, en þar voru 21 hestar í 4.vetra flokki, 29 hestar í 5.vetra flokki, 33 hestar í 6,vetra flokki og 27 í elsta flokki stóðhesta. Ef allir þeir hestar sem náð hafa lágmörkum mæta þá verður samt 25% færri stóðhestar á LM2012 en árið áður á Vindheimamelum 2011.
Efstu hestar landsins 2012:
4.vetra stóðhestar
1. Hrafn frá Efri-Rauðalæk 8.28
F: Markús frá Langholtsparti
M:Hind frá Vatnsleysu
2. Kolskeggur frá Kjarnholtum 8.18
F: Kvistur frá Skagaströnd
M: Hera frá Kjarnholtum I
3. Hrói frá Flekkudal 8.17
F: Glymur frá Flekkudal
M: Glaðbeitt frá Flekkudal
4. Nói frá Stóra-Hofi 8.15
F: Illingur frá Tóftum
M: Örk frá Stóra-Hofi
5. Prinsinn frá Efra-Hvoli 8.14
F: Álfur Selfossi
M: Perla frá Ölvaldsstöðum
6. Púki frá Lækjarbotnum 8.14
F: Hróður frá Refsstöðum
M: Hekla-Mjöll frá Lækjarbotnum
5.vetra stóðhestar
1. Eldur frá Torfunesi 8.60
F: Máttur frá Torfunesi
M: Elding frá Torfunesi
2. Skýr frá Skálakoti 8.55
F: Sólon frá Skáney
Vök frá Skálakoti
3. Arion frá Eystra-Fróðholti 8.49
F: Sær frá Bakkakoti
Gletta frá Bakkakoti
4. Sproti frá Sauðholti 2 8.47
F: Þyrnir frá Þóroddsstöðum
M: Góa frá Leirulæk
5. Steðji frá Skipaskaga 8.45
F:Stáli Kjarri
M: Sjöfn frá Akranesi
6.vetra stóðhestar
1. Hrannar frá Flugumýri II 8.85
F: Kraftur frá Bringu
F: Hending frá Flugumýri
2. Krókur frá Ytra-Dalsgerði 8.52
F: Gári frá Auðsholtshjáleigu
M: Hnoss frá Ytra-Dalsgerði
3. Gróði frá Naustum 8.50
F: Geisli frá Sælukoti
M:Snörp frá Naustum
4. Víkingur frá Ási 2 8.47
F:Ófeigur frá Þorláksstöðum
M:Skyssa frá Bergstöðum
5. Maríus frá Hvanneyri 8.46
F:Klettur frá Hvammi
M:Hrund frá Stóra-Ármóti
7.vetra og eldri stóðhestar
1. Seiður frá Flugumýri II 8.63
F: Klettur frá Hvammi
M: Sif frá Flugumýri II
2. Konsert frá Korpu 8.61
F: Sær frá Bakkakoti
M: Hátíð frá Hellu
3. Hnokki frá Þúfum 8.59
F:Hróður frá Refsstöðum
M: Lygna frá Stangarholti
4. Óskasteinn frá Íbishóli 8.56
F: Huginn frá Haga I
M: Ósk frá Íbishóli
5. Trymbill frá Stóra-Ási 8.51
F: Þokki frá Kýrholti
M: Nóta frá Stóra-Ási
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH