Hestamannafélagið Sleipnir Uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Sleipnis

  • 9. nóvember 2026
  • Fréttir
Knapar, ræktendur og félagsmenn ársins heiðraðir

Uppskeruhátíð eldri flokka hjá Hestamannafélaginu Sleipni fór fram í félagsheimilinu Hliðskjálf laugardaginn 7. nóvember síðastliðinn. Þar komu félagsmenn, vinningshafar og aðstandendur saman og gerðu upp viðburðarríkt keppnis- og ræktunarár 2026.

Knapi ársins hjá Sleipni er Loftur Breki Hauksson, sem var jafnframt stigahæsti knapi félagsins yfir alla flokka á árinu. Loftur Breki átti magnað keppnistímabil; varð Íslandsmeistari í tölti T1 í unglingaflokki á Fylkingu frá Austurási, silfurhafi í unglingaflokki á Landsmóti á Fannari frá Blönduósi og vann til fjölda annarra verðlauna á árinu, auk þess að vera valinn í U-21 landsliðshóp Íslands fyrir HM 2027.

Berglind Sveinsdóttir formaður Sleipnis og Loftur Breki Hauksson knapi ársins í Sleipni

Þá var Glódís Rún Sigurðardóttir valin íþróttaknapi ársins eftir glæsilegan árangur á keppnisvellinum, m.a. sigur í T1 í Meistaradeild Líflands á Víkari frá Austurási, og Guðmunda Ellen Sigurðardóttir var útnefnd gæðingaknapi ársins eftir eftirminnilega frammistöðu í A-úrslitum B-flokks á Landsmóti og sigur á Metamóti Spretts.

F.v. Berglind Sveinsdóttir, Glódís Rún Sigurðardóttir, Guðmunda Ellen Sigurðardóttir og Kamilla Nótt Jónsdóttir, sem aðstoðaði við verðlaunaveitingu

Helstu verðlaunahafar Sleipnis 2026

Knapi ársins: Loftur Breki Hauksson
Íþróttaknapi ársins: Glódís Rún Sigurðardóttir
Gæðingaknapi ársins: Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
Knapi ársins í ungmennaflokki: Viktor Óli Helgason
Knapi ársins í áhugamannaflokki: Þórdís Sigurðardóttir
Félagar ársins: Bryndís Guðmundsdóttir og Jón Þór Tómasson

F.v. Berglind Sveinsdóttir, Viktor Óli Helgason, Þórdís Sigurðardóttir og Kamilla Nótt Jónsdóttir

Félagar ársins heiðraðir

Bestu tímar ársins í skeiðgreinum

100 m skeið: Sigursteinn Sumarliðason á Liðsauka frá Áskoti (7,64 sek.) – í fjórða sinn í röð og sjöunda sinn alls sem Sigursteinn nær besta tíma félagsins.
150 m skeið: Larissa Silja Werner á Hyl frá Kjarri (14,93 sek.).
250 m skeið: Páll Bragi Hólmarsson á Snjalli frá Austurkoti (22,35 sek.) – tími sem skilaði honum Íslandsmeistaratitli og var 6. besti tími ársins á landsvísu.

Bestu tímar ársins í skeiðgreinum. F.v. Berglind Sveinsdótttir, Guðmundur Árnason sem tók við verðlaunum fyrir Sigurstein Sumarliðason, Larissa Silja Werner, Páll Bragi Hólmarsson og Kamilla Nótt Jónsdóttir

Sögufrægir farandbikarar og kynbótaafrek

Hinir hefðbundnu og sögufrægu gripir félagsins voru afhentir á hófinu:
Sleipnisskjöldurinn (A-flokkur): Ýr frá Selfossi, ræktuð af Atla Fannari Guðjónssyni og í eigu hans og Elvars Þormarssonar, en Elvar reið hryssunni til sigurs á gæðingamóti félagsins með einkunnina 8,68.
Klárhestaskjöldurinn (B-flokkur): Þröstur frá Kolsholti 2 og Helgi Þór Guðjónsson, ræktandi og eigandi hestsins, eftir sigur á gæðingamóti með einkunnina 8,99 í úrslitum.

F.v. Berglind Sveinsdóttir og frændurnir Atli Fannar Guðjónsson og Helgi Þór Guðjónsson

Veittar voru sérstakar viðurkenningar fyrir sögulegan árangur í kynbótadómi á árinu.

Hugsýn frá Ketilsstöðum (ræktuð af Bergi Jónssyni og Olil Amble, í eigu og sýnd af Elin Holst) hlaut hæsta dóm sex vetra hryssu frá upphafi, 8,99 í aðaleinkunn.

Safír frá Laugadælum (ræktaður af Malin Widarsson, í eigu Anja Egger og Fákshóla, sýndur af Jakobi Svavari Sigurðssyni) hlaut Ræktunarbikar Sleipnis og sérstaka viðurkenningu fyrir hæsta dóm sögunnar, 9,13 í aðaleinkunn.

Tekið við verðlaunum fyrir Hugsýn frá Ketilsstöðum. F.v. Berglind Sveinsdóttir, Elín Holst, Bergur Jónsson, Olil Amble og Kamilla Nótt Jónsdóttir

Tekið við verðlaunum fyrir Safír frá Laugardælum. F.v. Berglind Sveinsdóttir, Ólafur Þór Þórarinsson, Malin Widarsson og Kamilla Nótt Jónsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link