Siguroddur hlaut FT-fjöðrina
Siguroddur Pétursson hlaut FT-fjöðrina fyrir framgöngu sína á Gæðingamóti Fáks um helgina.
„Á gæðingamóti Fáks veitti félag tamningamanna Siguroddi Pétursyni Ft fjöðrina fyrir frábæra framgöngu sína með stóðhestinn Hryn frá Hrísdal. Þar fór saman einstök útgeislun, burður, lipurð og léttleiki. Mikil jákvæð orka undir stjórn og umfram allt sýndi Siguroddur sanngirni í reiðmennsku sinni. Til hamingju Siguroddur,“ segir í tilkynningu frá formanni FT, Súsönnu Ólafsdóttur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH