Ríkissjóður kaupir Brúnastaði á Hólum

  • 4. nóvember 2026
  • Fréttir

Brúnastaðir eru mikilvægir fyrir reiðkennslu á Hólum

Styrkari stoðir undir íslenska hestinn á Hólum

Ríkissjóður Íslands hefur gengið frá kaupum á hesthúsinu og reiðhöllinni Brúnastöðum á Hólum í Hjaltadal, en þetta kemur fram á vef Háskóla Íslands. Kaupin marka stóran áfanga fyrir hestafræðideildina, nemendur hennar og framtíð hestafræðinámsins. Yfirfærsla eignarinnar átti sér stað um síðustu mánaðamót.

Frá því að Brúnastaðir voru byggðir hafa þeir verið í eigu einkaaðila, Hesthóla ehf., og hefur skólinn haft aðstöðuna á leigu um árabil. Húsnæðið gegnir lykilhlutverki í daglegu lífi nemenda, sem hafa haft þar aðstöðu fyrir hross sín og nýtt reiðhöllina við verklega kennslu og þjálfun. Með kaupunum eignast skólinn aðstöðuna að fullu og fær aukið svigrúm til framtíðarþróunar.

Skýr vilji stjórnvalda og öryggi fyrir nemendur

Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti HÍ á Hólum, fagnar kaupunum:
„Þessi kaup eru skýr staðfesting á vilja stjórnvalda til að byggja áfram upp öflugt náms- og rannsóknarumhverfi í kringum íslenska hestinn á Hólum. Þau skapa mikilvægan grundvöll fyrir áframhaldandi þróun hestafræðideildarinnar og tryggja að við getum áfram boðið framúrskarandi nám og rannsóknir sem stuðla að velferð íslenska hestsins og styrkja stöðu hans til framtíðar.“

Forystumenn nemendafélagsins, þær María Björk Leifsdóttir formaður og Ellen Duering varaformaður, taka í sama streng. Þær segja kaupin veita nemendum mikið öryggi, skapa bjartsýni og færa stór tækifæri til að efla verklega kennslu og nám til frambúðar.

Styrkari stoðir undir íslenska hestinn á Hólum

Auk kaupanna á Brúnastöðum var síðastliðið sumar undirrituð viljayfirlýsing milli sveitarfélagsins Skagafjarðar,menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og Háskóla Íslands á Hólum um stofnun Rannsóknaseturs íslenska hestsins.

Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, bendir á að kaupin séu mikilvægur áfangi í að bæta starfsaðstöðu kennara og nemenda innan háskólasamstæðunnar, sem styðji við þá ánægjulegu þróun sem sást í nýnemafjölgun síðastliðið haust.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link