Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt
Natalie Fischer og ímnir fra Egeskov sem keppa fyrir hönd Danmerkur og eru þau ríkjandi heimsmeistarar í 100 og 250 metra skeiði. Ljósmynd: Henk & Patty
Danska Íslandshestasambandið (Dansk Íslandshesteforening) hefur kynnt liðsstjórn, landsliðsþjálfara og landsliðsnefnd fyrir árið 2027, en undirbúningur fyrir heimsmeistaramótið í Rieden í Þýskalandi er þegar hafinn.
Eyvindur Hrannar Gunnarsson heldur áfram sem liðsstjóri danska landsliðsins og fær Karen B. Rasmussen sér við hlið sem aðstoðarliðsstjóra. Karen býr yfir mikilli reynslu; hún hefur áður keppt fyrir Danmörku í bæði íþrótta- og kynbótadómum, verið liðsstjóri níu sinnum fyrir Danmörku og Bretland, auk þess að vera FEIF 2 reiðkennari.
Rune Svendsen mun gegna hlutverki landsliðsþjálfara á HM 2027. Rune er FEIF 3 reiðkennari og alþjóðlegur FEIF-dómari sem áður hefur starfað sem landsliðsþjálfari fyrir bæði Danmörku og Noreg. Hans helsta hlutverk á mótinu verður að veita knöpum faglegan og stefnumótandi stuðning.
Valnefndin sem velur í úrvalshóp og lokahóp landsliðsins er einnig tilbúin. Í henni sitja Eyvindur Hrannar, Karen B. Rasmussen og Tenna Lund, sem er danskur íþróttadómari og situr í íþróttanefnd danska sambandsins.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing