Ræktunaforseti FEIF hlynntur sýningum á 4v kynbótahrossum
Lengi hefur verið deilt um hvort fjögra vetra hross hafi líkamlegan og andlegan þroska til að taka þátt í kynbótasýningum eins og þær eru nú uppbyggðar. Með fordómi, yfirlitssýningu og verðlaunaafhendingu. Í Þýskalandi hefur lengi verið bannað að sýna fjögra vetra íslensk hross í kynbótadómi.
Nú kveður við annan tón, því ræktunarforseti FEIF, þjóðverjinn Marlise Grimm, telur að fjögra vetra hross þoli álagið. Kollegi hennar á Íslandi Magnús Lárusson, er hins vegar á öndverðri skoðun. Bæði voru leiðbeinendur á námskeiði sem haldið var á vegum FEF á Skeiðvöllum í mars, þar sem þau leiðbendu 25 efnilegum kynbótaknöpum til að ná hámarksárangri í sýningum. Elka Guðmundsdóttir, blaðamaður Hestablaðsins í Rangárþingi, spjallaði við þau Marlise og Lárus og þar kom meðal annars þetta fram þegar spurt var um hvort ekki þyrfti að hafa áhyggjur af sýningu á fjögra vetra kynbótahrossum:
Marlise Grimm:
„Ég skil mjög vel þessar áhyggjur en við höfum verið í góðum samskiptum við dýralækna sem hafa skoðað hross að loknum sýningum og þar hefur ekkert komið fram sem gefir tilefni til að hafa áhyggjur af álagi á ung hross. Oft á tíðum eru hrossin betri á yfirlitssýningum en í forsýningu sem ætti að gefa til kynna að ekki sé farið yfir þennan þröskuld. Einnig eru mörg dæmi þess að hross sem eru sýnd 4 vetra séu að fá hærri dóm 5 vetra, og oft notuð í keppni árin þar á eftir. Ég held að hrossin séu almennt vel uppbyggð og þoli þetta álag, en auðvitað eru einstaka hross sem eru ekki nægilega sterk og hugsanlega ekki nægilega hæfileikarík og þar af leiðandi sé verið að sækjast eftir betri einkunnum en gæðin leifa. En ég held að í fleiri tilvikum séu hrossin tilbúin en ekki.“
Magnús Lárusson:
„Við erum allaf að reyna að gera sýningarnar hestvænni en þó er langt í land að sýningar verði yfirleitt hestvænar, ef það verður nokkurntíma. Í sumum löndum er bannað að sýna 4 vetra hross, t.d. í Þýskalandi. Ég er þeirrar skoðunar að það séu afar fá 4 vetra hross líkamlega og andlega tilbúin í kynbótasýningu. Í sumum tilfellum getur það tekið þau langan tíma að komast á réttan kjöl aftur eftir slíkt álag, ekki síður andlega. Í dag eru hross betur undirbúin líkamlega með stórbættum aðbúnaði við uppeldi hrossanna, en ekki má gleyma andlega þættinum sem hefur ekki síður áhrif.“
Fjallað verður nánar um námskeiðið á Skeiðvöllum í næsta tölublaði Hestablaðsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH