Glotti með hæstu hæfileikaeinkunnina – Prins efstur-

  • 3. ágúst 2011
  • Fréttir
Glotti með hæstu hæfileikaeinkunnina - Prins efstur-

Í flokki stóðhesta 7 vetra á eldri komu fram margir stórkostlegir gæðingar. Teigur vom Kronshof hinn þýski reið á vaðið og hlaut glæsilegan dóm fyrir hæfileika, 8,80, þar af fékk hann 9 fyrir tölt, skeið og fegurð í reið og 9,5 fyrir vilja og geðslag. Hann er með aðleinkunnina 8,61 og er í öðru sæti. Þriðji er hinn danski Pá fra Eyfjord sem fékk 8,68 fyrir hæfileika og 8,58 í aðaleinkunn.

Glotti okkar frá Sveinatungu stóð sig afar vel í dómi, hann var greinilega í miklu stuði hjá Jakobi Svavari Sigurðssyni og hlaut Glotti hæstu einkunn allra kynbótahrossa á mótinu fyrir hæfileika, 8,88. Þar af fékk hann 9,5 fyrir skeið og vilja og geðslag og 9 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið. Hann er með aðaleinkunnina 8,52 og er í fjórða sæti flokksins.

Hin forkunnar fagri Prins frá Knutshyttan fór vel hjá Vigni Jónassyni og hlaut 8,62 fyrir hæfileika og er hæst dæmdi hestur flokksins, með 8,69 í aðaleinkunn.

Dómur Glotta frá Sveinatungu:

Sköpulag
Höfuð     8
Háls/herðar/bógar     8
Bak og lend     8.5
Samræmi     8
Fótagerð     7.5
Réttleiki     7.5
Hófar     8.5
Prúðleiki     7.5
Sköpulag     7.98

Hæfileikar
Tölt     9
Brokk     9
Skeið     9.5
Stökk     8
Vilji og geðslag     9.5
Fegurð í reið     9
Fet     6
Hægt tölt     8.5
Hægt stökk     5
Hæfileikar     8.88

Aðaleinkunn     8.52

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link