Von efst, Gjöf í þriðja – sænskar hryssur lækka-
Hin norska Von frá Vigra stendur efst í elsta flokki hryssa eftir fyrri umferð hæfileikadóma. Hún hlaut glæsilega 8,62 fyrir hæfileika, í gær fékk hún 8,68 fyrir sköpulag og er því með 8,65 í aðaleinkunn. Von er undan Angasyninum Nökkva frá Vestra-Geldingaholti og Hel frá Gullberastöðum, sem er undan Stíg frá Kjartansstöðum.
Önnur er Odda fra Gultentorp í Danmörku, sem hlaut 8,59 fyrir hæfileika og er með í aðaleinkunn 8,32.
Í þriðja sæti er okkar hryssa, Gjöf frá Magnússkógum, sem hlaut 8,24 fyrir hæfileika, þar af einkunnina 9 fyrir fegurð í reið. Í aðaleinkunn hefur Gjöf nú 8,23 sem er nokkuð frá 8,55 dómi sem hún fékk í vor. Dómur Gjafar er hér meðfylgjandi.
Sænsku hryssurnar hafa ekki átt jafn góðu gengi að fagna og í kynbótadómum í heimalandinu og vekur það nokkra athygli að þær falla allar niður í hæfileikaeinkunn. Meyla från Jemthagen lækkar úr 8,80 í 7,98 og Ásdís från Knutshyttan lækkar úr 8,58 í 8,00 og Frísk fran Knubbo lækkar úr 8,6 í 8,31.
Dómur Gjafar:
Sköpulag
Höfuð 8
Háls/herðar/bógar 8.5
Bak og lend 8
Samræmi 8
Fótagerð 8
Réttleiki 7
Hófar 9
Prúðleiki 8.5
Sköpulag 8.22
Hæfileikar
Tölt 8
Brokk 8.5
Skeið 8
Stökk 8
Vilji og geðslag 8.5
Fegurð í reið 9
Fet 7
Hægt tölt 8.5
Hægt stökk 8
Hæfileikar 8.24
Aðaleinkunn 8.23
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH