Tölt í Meistaradeild í hestaíþróttum
Töltkeppni Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum fer fram í kvöld í Ölfushöllinni. Á ráslistanum má finna nokkrar þekktar stærðir í hestakosti. Artemisia Bertus, sem sigraði fyrstu tvær greinar deildarinna, er skráð í töltið með Óskar frá Blesastöðum, sem hún sigraði fjórganginn á. Allra augu munu nú mæna á þetta par í töltinu.
Sara Ástþórsdóttir er skráð með Dívu frá Álfhólum, en þær stöllur urðu númer tvö í gæðingafimi, einkum fyrir góða spretti á tölti. Þær eiga góðan árangur á útivelli í handraðanum. Jakob Svavar Sigurðsson er skráður með Árborgu frá Miðey, sem hefur átt góðu gengi að fagna í deildinni og víðar. Hulda Gústafsdóttir mætir á gömlum kunningja, Sveig frá Varmadal, sem er orðinn hagvanur í úrslitum í tölti og fjórgangi. Sigurbjörn Bárðarson er skráður með Jarl frá Miðfossum, sem hefur verið misjafn en náð góðum sprettum inn á milli.
Rásröð:
1 Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Sædynur frá Múla
2 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Glefsa frá Auðsholtshjáleigu
3 Elvar Þormarsson Spónn.is Gráða frá Hólavatni
4 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Lómur frá Langholti
5 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Gaumur frá Dalsholti
6 Artemisia Bertus Hrímnir Óskar frá Blesastöðum 1A
7 Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Háfeti frá Úlfsstöðum
8 John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Tónn frá Melkoti
9 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Jarl frá Mið-Fossum
10 Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Díva frá Álfhólum
11 Lena Zielinski Auðsholtshjáleiga Njála frá Velli II
12 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Hrókur frá Flugumýri II
13 Viðar Ingólfsson Hrímnir Vornótt frá Hólabrekku
14 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Ganghestar / Málning Þórir frá Hólum
15 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Smyrill frá Hrísum
16 Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá Lækjarbotnum
17 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Njáll frá Friðheimum
18 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal
19 Sigurður Sigurðarson Lýsi Dreyri frá Hjaltastöðum
20 Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Liba frá Vatnsleysu
21 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Árborg frá Miðey
Forsala aðgöngumiða er í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi, Selfossi. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH