Ungir á uppleið: Linda Rún
Eins og áður hefur komið fram mun Félag tamningamanna standa fyrir sýnikennslu fögurra efnilegra reiðkennara í reiðhöllinni í Herði sunnudaginn nk. 12. febrúar kl. 19:30.
Ein þeirra er hin 23 ára gamla Linda Rún Pétursdóttir:
„Ég hef stundað hestamennsku frá barnæsku. Ég útskrifaðist sem reiðkennari frá Háskólanum á Hólum vorið 2011. Ég hef keppt m.a. á Landsmótum, Norðurlandamóti, Íslandsmótum með góðum árangri, sem hefur kvatt mig mikið áfram. Ég keppti á heimsmeistaramótinu í Sviss sumarið 2009 og var það lífsreynsla sem ég mun aldrei gleyma og alltaf búa að. Núna bý ég í Borgarfirði á Staðarhúsum og rek þar tamningarstöð, en þar er einnig boðið upp á kennslu og fleira.“
Næstu daga munu þau Rósa Birna Þorvaldsdóttir, Ragnhildur Haraldsdóttir og James Faulkner einnig kynna sig en óhætt er að hvetja hestamenn til að fjölmenna á sýnikennsluna á sunnudag og hlusta á hugmyndir þessarra ungu reiðkennara.
Aðgangseyrir er 1000 kr. en frítt er fyrir skuldlausa félaga FT.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH