Gula spjaldið

  • 27. apríl 2011
  • Fréttir
Gula spjaldið

Nokkuð umdeilt atvik átti sér stað á opna íþróttamóti Mána á dögunum þegar knapi fékk gult spjald fyrir grófa reiðmennsku í hléi milli atriða.

Eiðfaxi leitaði upplýsinga um ástæður þessa hjá yfirdómara mótsins, Herði Hákonarsyni:

„Í kaffihléi reið knapi hesti sínum inn á aðalvöll. Reið hann þar nokkra hringi og sýndi reiðmennsku sem ekki er til fyrirmyndar. Knapinn reyndi að leggja hestinn, snarbremsaði hann og sýndi af sér grófa reiðmennsku. Knapinn gerði þetta inn á aðalvelli undir augum dómara og áhorfenda. Allir dómarar á mótinu ákváðu að láta þetta atvik ekki viðgangast og urðu sammála um að gefa keppandanum gult spjald fyrir grófa reiðmennsku.“

Þegar keppendur eru á keppnissvæði er fylgst með þeim. Keppendur eiga að sýna fyrirmynd og prúða reiðmennsku, hvort sem það er í upphitun utan vallar eða inn á hringvelli.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link