Folaldasýning og sviðamessa
Andvaramenn ættu að taka laugardaginn 4. febrúar frá.
Í Félagsheimili Andvara verður slegið upp í Sviðamessu Jonna kl. 12. Ellert Þ Benediktsson dýralæknir á Hellu segir frá fósturvísaflutningum undir borðhaldi. Verð með mat 2.500.
Að henni lokinni, eða kl. 15, hefst folaldasýning í Reiðhöll Kjóavalla.
Keppt í flokki hryssa og hesta. Dómari er Ævar Örn Guðjónsson
Gefa þarf upp IS númer, nafn, lit , föður, móður og eiganda. Skráningargjald er 1000 kr. fyrir félagsmenn Andvara en 1500 kr. fyrir aðra. Greiða þarf á staðnum með peningum.
Skráning fer fram í gegnum netfangið [email protected] til 2. febrúar kl. 20.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH