Nýr Eiðfaxi í prentun
Fyrsta tölublað Eiðfaxa á árinu er nú í prentun og berst áskrifendum í næstu viku. Blaðið er fullt af fróðleik og áhugaverðu efni sem aldrei fyrr, hér fyrir neðan er stiklað á stóru í efnistökum blaðsins. Þessar greinar og mun meira af skemmtilegu efni má nálgast í nýjasta tölublaði Eiðfaxa
Hekla Katharína Kristinsdóttir, nýlega ráðin kennari við Háskólann á Hólum, ætlar að deila með okkur þjálfunaraðferðum sínum. Hekla kynnir til leiks tvo hesta. Þessir hestar eru ólíkar hestgerðir á mjög mismunandi stað í þjálfunarferlinu. Kynnt verður til leiks þjálfunarplan fyrir hvern hest og því síðan fylgt eftir í næstu þremur tölublöðum Eiðfaxa.
Áframhaldandi umfjöllun um ESB: Grein Karolu Schmeil um mögulega inngöngu Íslands í ESB í síðastliðnu tölublaði vakti mikla athygli. Málið verður krufið frekar og rætt er meðal annars við hagsmunasamtök já og nei sinna.
Uppskrúfaður Væntingastuðull: Svo gefur hver sem hann er góður til
„Hrossaræktendur eru oft fullfljótir að mynda sér skoðun á kynbótagildi hvers grips byggt á örfáum afkvæmum. Þetta á sérstaklega við með afkvæmi stóðhesta sem vakið hafa mikla lukku í einstaklingsdómi,“ segir í grein um ályktanir hestamanna sem eru dregnar af of fáum afkvæmum stóðhesta.
Björgunarsveitahestar: Geta bjargað mannslífum
„Hestar eru í eðli sínu mjög næmar skepnur og knapi sem þekkir hest sinn vel skynjar þegar hestur hans verður var við eitthvað óvenjulegt í umhverfinu. Þannig getur knapi með hjálp hestsins skynjað umhverfið betur en leitarmaður sem ekki nýtur liðsinnis hestsins.“ Segir meðal annars í áhugaverðri grein um Björgunarhesta Íslands sem samanstendur af félögum í slysavarnafélaginu Landsbjörg
Með nesti við Bogann: Stórskemmtileg frásögn Árna Gunnarsonar frá Reykjum af hestamanninum Marínó Pétri og hestamennsku hans
„Hún var strokgjörn og þá héldu henni engar girðingar né aðrar hindranir. Það gat svo sem verið kostur þegar þurfti að sækja hana um langan veg og jafnvel í aðrar sveitir að losna við að opna hlið eða krækja fyrir vélgrafna skurði.“
Þjálfun á sveigðu spori: Meðvituð og ómeðvituð þjálfunaraðferð um aldir
Þjálfun reiðhesta á sveigðu spori hefur verið stunduð víða um heim öldum saman. Það var þörfin fyrir traustan, sterkan, fiman og vel taminn stríðshest sem fyrst og fremst var rótin og hvatningin að því að reiðmenn fyrri alda þróuðu tamningaaðferðir og æfingar, sem eru í meginatriðum þær „fimiæfingar“ sem eru grundvöllur nútíma dressúr reiðmennsku.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH