Nýliðunin er forgangsmál

  • 11. febrúar 2013
  • Fréttir
Nýliðunin er forgangsmál

 

JENS EINARSSON:

Haraldur Þórarinsson, formaður LH, var á aðalfundi FEIF í Strasbourg. Hann segir að eitt áhugaverðasta atriðið á dagskránni fyrir sína parta hafi verið erindi Silvie Rizo frá Frakklandi um vottunarkerfi fyrir frístundahesta.

„Í erindi hennar kom fram að franska hestasambandið, og þá er ég að tala um landssambandið fyrir öll hestakynin, hefur gert ítarlega greiningu á samsetningu hestafólks í sambandinu. Það er að segja á hvaða grundvelli fólk stundar hestamennskuna; hvort fólk er í ræktun, keppni, frístunda hestamensku, og svo framvegis. 

Ef ég man rétt þá sagði hún að það væru um 700 þúsund manns í sambandinu og hestamennska er þriðja stærsta sportið í Frakklandi. Langflestir eru frístundahestamenn, sennilega um 80%. Í þeim hópi eru miðaldra konur í meirihluta; konur sem eru búnar að ala upp börnin og hafa valið hestamennskuna sem áhugamál. 

Það segir sig sjálft að það er mikið öryggisatriði að þetta fólk geti treyst því að hrossin sem það kaupir séu ekki hættuleg, séu traust í lund. Frakkar hafa því þróað ítarlegt próf fyrir frístundahross sem framkvæmt er af þar til bæru fólki á vegum hestasambandsins. Hrossin eru stiguð fyrir lund, gangtegundir og svo framvegis, fá einkunnir fyrir einstaka eiginleika, og vottorð ef þau standast prófið.

Þetta er að mínu mati eitt það mikilvægasta fyrir aukna nýliðun í Íslandshestamennskunni. Við megum ekki gleyma því að Gunnar Bjarnason markaðssetti íslenska hestinn sem ódýran og traustan fjölskylduhest fyrst og fremst og þannig náði hann útbreiðslu. Við höfum kannski gleymt okkur dálítið í því að einblína á keppnis- og sýningahestinn, sem er góður og gildur út af fyrir sig. En forsendan fyrir því að fá nýja iðkendur í greinina í einhverjum mæli er að venjulegt fólk geti fundið þæg hross og aðstöðu á viðráðanlegu verði.

Ég hef fyrir nokkru lagt fram í Landssambandi hestamannafélaga hugmyndir að svipuðu vottunarkerfi. Óhjákvæmilega hefur þetta einhvern kostnað í för með sér, en samkvæmt Sylvie þá eru seljendur hrossa í Frakklandi meira en svo tilbúnir til að greiða fyrir vottunina, vegna þess að hún er ákveðinn gæðastimpill sem auðveldar söluna. Þegar upp er staðið hef ég trú á að þetta verði ódýrara fyrir alla. Það er dýrt og svekkjandi að sitja uppi með hest sem maður getur ekki notað. Betra er að greiða aðeins hærra verð fyrir öruggan hest og geta notið hans,“ segir Haraldur.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link