Eyjólfur Þorsteins á heimleið

  • 14. desember 2023
  • Fréttir

Eyjólfur Þorsteinsson er mörgum hestamönnum kunnugur en hann hefur starfað við hestamennsku um langa tíð. Síðastliðinn ár hefur hann verið búsettur í Svíþjóð en flytur heim til Íslands nú um jólin. „Stærsta ástæðan fyrir því að ég flyt heim er dóttir mín hún Valdís, sem býr á Íslandi hjá Vigdísi mömmu sinni. Hún er 10 ára núna og mér finnst ég vera að missa af miklu að geta ekki verið hluti af hennar lífi alla daga. Hún er mjög áhugasöm um hestamennsku og ég hlakka til að geta stundað hana með henni á fullu og stutt við hana í því.“

Eyjólfur og Valdís dóttir hans í verðlaunaafhendingu

„Ég skil sáttur við Svíþjóð en hingað flutti ég árið 2014. Hef kynnst fullt af góðu fólki og verð líklega áfram nátengdur hestamennskunni þar í landi.“ Eyjólfur hefur verið mjög sýnilegur í keppni í Svíþjóð og einnig verið umsvifamikill á kynbótabrautinni og hann vonar að svo verði áfram á Íslandi. „Áður en ég flutti út var ég mikið í keppni á hestum en minna að sýna hross í kynbótadómi. Ég hef verið það heppinn að fá helling af tækifærum til þess í Svíþjóð og öðlast mikla reynslu í kringum kynbótasýningar. Áhugi minn liggur því mikið orðið á þeim vettvangi og þar langar mig að hafa mikinn fókus áfram.“

 

Eyjólfur mun hafa aðsetur í Hafnarfirði þar sem hann mun stunda hestamennsku að atvinnu. „Ég hlakka mjög til þess að komast aftur heim í hringiðustraum hestamennskunnar. Vegalengdinnar hér í Svíþjóð eru langar og því er ekki alltaf tækifæri til þess að vera innan um aðra atvinnumenn í greininni en það er ekki raunin heima. Ég er þvi fullur tilhlökkunar fyrir framtíðinni“ Segir Eyjólfur í samtali við blaðamann Eiðfaxa, við bjóðum hann velkominn heim og óskum honum góðs gengis.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link