Suðurlandsmótið

  • 11. ágúst 2012
  • Fréttir
Suðurlandsmótið

Suðurlandsmót(WR-mót) í hestaíþróttum 2012 verður haldið dagana 15-19 ágúst á Gaddstaðaflötum við Hellu. Skráning og greiðsla skráningargjalda fer fram á netslóðinni skraning.is og hefst miðvikudaginn 8.ágúst og lýkur kl 23:59 laugardagskvöldið 11.ágúst. Skráningargjald er 5000kr á hverja skráningu. Ef ekki verður næg þátttaka í einhverjum flokkum verður sá flokkur sameinaður öðrum eða feldur niður. Keppt verður í hefðbundnum flokkum og eru 3 inná vellinum í einu í öllum flokkum nema opnum flokki 1 þar verður 1 keppandi inná vellinum í einu.

Smá útskýring á flokkunum svo enginn miskilji neitt.
Tölt T1 venjuleg tölt keppni með einum keppanda inná í vellinum einu, tölt T3 er venjuleg töltkeppni með 3 keppendum inná vellinum í einu.
Slaktaumatölt T2(einn inná vellinum í einu), slaktaumatölt T4 er venjulegt slaktaumatölt með 3 inná vellinum í einu.
Fjórgangur V1(einn inná vellinum í einu), fjórgangur V2 er venjulegur fjórgangur með 3 inná vellinum í einu.
Fimmgangur F1(einn inná vellinum í einu), fimmgangur F2 er venjulegur fimmgangur með 3 inná vellinum í einu.
Tölt T7 er síðan hægt tölt uppá aðra höndina hægt niður á fet og snúið við og frjáls ferð á tölti uppá hina höndina, þessi grein hentar mjög vel þeim sem langar að byrja að keppa á hringvelli, einnig er þessi grein með sama sniði og flestir vetrarleikar sem fjöldi fólks tekur þátt í yfir vetrarmánuðina.
 
Flokkar sem keppt er á á Suðurlandsmóti 2012:
 
Opinn flokkur 1:
tölt T1, tölt T2, fjórgangur V1, fimmgangur F1, gæðingaskeið
 
Opinn flokkur 2:
tölt T3, tölt T4, tölt T7, fjórgangur V2, fimmgangur F2, gæðingaskeið
 
Ungmennaflokkur:
tölt T3, tölt T4, fjórgangur V2, fimmgangur F2, gæðingaskeið
 
Unglingaflokkur:
tölt T3, tölt T4, fjórgangur V2, fimmgangur F2, gæðingaskeið
 
Barnaflokkur:
tölt T3, tölt T7, fjórgangur V2
 
100m skeið
150m skeið
250m skeið

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link