Landsmótsúrtaka hjá Neista
Félagsmót Neista og úrtaka fyrir Landsmót verður haldið á Blönduósvelli mánudaginn 13. júní kl. 10.
“Neisti á rétt á að senda 2 hesta til keppni á Landsmót í hverjum flokki (ekki pollaflokkur). Keppt verður í tölti opinn flokkur, A og B flokki gæðinga, flokki polla, barna, unglinga og ungmenna. Ef ekki er næg þátttaka í einhverri keppnisgrein áskilur mótanefnd sér rétt til að fella niður þá grein. Skráningar á mótið skulu berast á netfangið [email protected] fyrir kl. 21.00 fimmtudagskvöldið 9. júní.
Skráningargjöld verða 2.000 kr fyrir fyrstu skráningu, 1.500 fyrir aðra skráningu og 1.000 kr eftir það. Börn og unglingar borga 800 kr.
Við skráningu þarf að koma fram IS-númer hests, kennitala knapa og keppnisgrein.
Skráningargjald leggist inn á reikningsnúmer 0307-26-055624, kt. 480269-7139 sama dag og skráð er og þar þarf að koma fram fyrir hvaða hesta er verið að borga og senda kvittun á áðurnefnt netfang.
Ath. Þar sem dómarar eru ekki allir íþróttadómarar er töltkeppnin ekki lögleg til stigasöfnunar til Landsmóts. Dagskrá auglýst síðar,” segir í tilkynningu frá mótanefnd Neista.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH