Árbók Eiðfaxa er í prentun
Jóhanna Margrét og Bárður Mynd: Henk Peterse
Þessa dagana er verið að prenta Árbók Eiðfaxa sem er afar efnismikil, hvorki meira né minna en 276 bls. Í henni eru umfjallanir í máli og myndum yfir allt það markverðasta af keppnis- og kynbótabrautinni á Íslandi árið 2023
Forsíðu Árbókarinnar prýða að þessu sinni íþróttaknapi ársins, tvöfaldir heimsmeistarar og þrefaldir Íslandsmeistarar Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi. Í bókinni er að finna viðtal við Jóhönnu þar sem hún rifjar upp árangur sinn á árinu. Þau Jóhanna og Bárður verða lengi í minnum höfð enda afar eftirminnilegt par sem enduðu feril sinn á því að hampa tölthorninu sem er einn eftirsóttasti verðlaunagripur hestaíþróttarinnar.
„Það er mjög erfitt að lýsa því hvernig tilfinning það er að verða heimsmeistari en í stuttu máli er hún stórkostleg. Eftir síðustu úrslitin, sem voru í tölti, koma svo fram mjög blendnar tilfinningar þá áttarðu þig á því að þetta er síðasta augnablikið með hestinum og þá líður manni skringilega. Það að skilja Bárð eftir er auðvitað eitthvað sem ég vissi að biði mín en ég mátti ekki að láta þær hugsanir ná tökum á mér fyrr en eftir að úrslitum væri lokið ef þær ná tökum á manni á mótinu verður maður lítill í sér og það má ekki ef maður ætlar að ná árangri.“
Við munum halda áfram næstu daga að kynna meira efni úr Árbókinni, enda af nægu að taka. Gera má ráð fyrir að Árbókin komi inn um bréfalúgur áskrifenda milli jóla og nýárs og verður hún í framhaldinu fáanleg í öllum helstu hestavöruverslunum. Ekki missa af Árbók Eiðfaxa!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH