“Ég hafði trú á verkefninu og það er það sem skiptir máli”

  • 24. desember 2023
  • Fréttir
Viðtal við efnilegasta knapa ársins, Jón Ársæl Bergmann

Jón Ársæll Bergmann var valinn efnilegasti knapi ársins á Uppskeruhátíð hestamanna í nóvember og fékk hann hvatningarverðlaun frá deild hrossabænda BÍ á hrossaræktarráðstefnu Fagráðs í byrjun desember. Árið 2023 var afar viðburðarríkt hjá þessum ungan knapa en hann varð fjórfaldur Íslandsmeistari, tvöfaldur Heimsmeistari og átti góðu gengi að fagna á kynbótabrautinni þar sem hann sýndi m.a. Díönu frá Bakkakoti í 10 fyrir skeið.

“Ég stefni á að sýna mikið í kynbótadómi á næsta ári en draumurinn hefur alltaf verið að vera kynbótaknapi. Mér finnst það langskemmtilegast en ég er mjög lítið fyrir það að ríða í hringi það verður að segjast eins og er. Ég er með nokkur hross sem mig langar að koma með aftur í dóm sem ég sýndi í sumar og önnur sem ég hef ekki sýnt áður,” segir Jón Ársæll.

Jón verður með í Meistaradeildinni í vetur en þetta verður fyrsta árið hans. Hann er með mörg spennandi keppnishrossum á járnum sem hann stefnir með í deildina og einnig á Landsmót næsta sumar. “Ég stefni með Rikka í skeiðgreinar og síðan er ég með Heiður frá Eystra-Fróðholti sem ég ætla að stilla upp í kannski tölt eða B flokk, á eftir að koma í ljós. Einnig er ég með hryssu sem heitir Halldóra frá Hólaborg sem mig langar að keppa á líka.”

Jón Ársæll keppti á stóðhestinum Frá frá Sandhóli á Heimsmeistaramótinu í sumar. Eigendur og þjálfarar Frás, Þór Jónsteinsson og Rósa Birna Þorvaldsdóttir höfðu samband við Jón um miðjan apríl og buðu honum að prófa hestinn með Heimsmeistaramótið í huga.

“Mér leist strax vel á þetta og fór og prófaði hestinn. Hann býr yfir svakalega góðum grunngangtegundir, brokk og stökk er gífurlega gott. Ég fann strax að þetta væri möguleiki. Við vorum fljótir að slípast saman, hesturinn mikið taminn og ég hafði trú á verkefninu. Ég heyrði að margir höfðu efasemdir um þetta og ekki allir sem höfðu trú á okkur en mér fannst það bara gaman. Ég eflist við það. Það sem skipti máli var að ég hafði trú á þessu,”

Lestu viðtal við Jón Ársæl í Árbók Eiðfaxa sem kemur út nú á næstu dögum.

Árbók Eiðfaxa er afar efnismikil, hvorki meira né minna en 276 bls. Í henni eru umfjallanir í máli og myndum yfir allt það markverðasta af keppnis- og kynbótabrautinni á Íslandi árið 2023. Við munum halda áfram næstu daga að kynna meira efni úr Árbókinni, enda af nægu að taka. Gera má ráð fyrir að Árbókin komi inn um bréfalúgur áskrifenda milli jóla og nýárs og verður hún í framhaldinu fáanleg í öllum helstu hestavöruverslunum. Ekki missa af Árbók Eiðfaxa!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link