Hrossaræktendur á Norðurlandi athugið
Hin árlega stórsýning Ræktun Norðurlands verður haldin föstudagskvöldið 25. mars næstkomandi í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki.
“Hrossaræktendur sem hafa áhuga á að koma fram með ræktunarbússýningar, afkvæmahópa eða einstaklinga (hryssur/stóðhesta) endilega láti í sér heyra. Þá verður boðið upp á að mæta með folöld sem afkvæmi stóðhesta (5 folöld fylgi þá hverjum hesti).
Sölusýning verður sama dag kl 17:00 og verður hún í beinni útsendingu á vefnum http://wms.vodafone.is/tindastoll
Skráning á sölusýningunna er á [email protected] Áhugasamir hafi samband við Eyþór Jónasson 453-6440 eða 8425240,” segir í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH