KB mótaröðin (opin keppni)

  • 11. febrúar 2010
  • Fréttir
KB mótaröðin (opin keppni)

Fyrsta mótið í KB mótaröðinni verður haldið Laugardaginn 13. febrúar og hefst keppni kl. 12.00, í Reiðhöllinni í Borgarnesi.

Keppt verður í 4-gangi í;

Barna-, unglinga-, ungmenna-, 1 –  og  2 flokki  (minna keppnisvanir).
Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður flokk ef þátttaka er ekki næg.

Minnum á liðakeppnina !!!! ( lágmarksfjöldi er 3 í liði),
Skrá þarf nafn liðs, hvert er einkenni og hverjir eru saman í liði um leið og tekið er við skráningum á fyrsta mótið.

Skráningargjald:  500 kr. fyrir börn, 1.000 kr. fyrir unglinga og 1500 kr. fyrir ungmenni, 1. og 2. flokk. (1.000 kr. fyrir annan hest).
   
Skráningar þurfa að berast fyrir kl. 20:00 kvöldið áður (föstudagskvöldið 12 feb.) á netföngin: [email protected], [email protected] eða í símum 691-0280 eða 699-6116.

Ekki verður skráð á staðnum.

Aðgangseyrir: kr. 500 fyrir 18 ára og eldri. (keppendur fá frítt inn)

Allar fyrirspurnir/vangaveltur skrifist á vegginn á Facebook.com – hópurinn heitir KB mótaröðin

                                   

KB Mótaröðin fer fram í reiðhöllinni í Borganesi og er haldin á vegum hestamannafélaganna Faxa & Skugga.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link