Þegar skökk áseta verður að vana
Halldóra Huld Ingvarsdóttir sjúkraþjálfari leggur áherslu á fyrirbyggjandi þjálfun knapa. Ljósmynd: Úr einkasafni
Líkaminn getur vanist ákveðinni líkamsstöðu svo vel að hún fari að upplifast sem eðlileg. Knapinn getur því talið sig sitja beint í hnakknum þótt þunginn dreifist ójafnt eða líkamsbeitingin sé ósamhverf. Gamlir áverkar, verkir og skertur hreyfanleiki geta einnig haft áhrif á ásetuna án þess að knapinn geri sér grein fyrir því.
Í þriðju grein greinaraðarinnar „Knapinn sem íþróttamaður“ skoðum við líkamsbeitingu knapans frá sjónarhóli Halldóru Huldar Ingvarsdóttur. Hún er starfandi sjúkraþjálfari og hefur meðal annars starfað með landsliðinu í hestaíþróttum.
Meira en að sitja í hnakknum
Að mati Halldóru krefst reiðmennska góðrar líkamsvitundar, jafnvægis og samhæfingar. Knapinn þurfi að geta haldið stöðugleika í bolnum en jafnframt verið nægilega mjúkur og hreyfanlegur í mjaðmagrind og mjöðmum til að fylgja hreyfingum hestsins.
Þetta snúist ekki eingöngu um styrk heldur einnig um að geta virkjað rétta vöðva á réttum tíma og slakað á þeim þegar þess er þörf.
Halldóra bendir á að hestamennska sé meiri líkamleg áreynsla en margir geri sér grein fyrir. Umhirða hestanna krefjist líkamlegrar færni og reiðmennskan sjálf geti falið í sér töluvert álag. Það eigi sérstaklega við þegar setið er lengi á baki eða margir hestar riðnir á einum degi.
Þótt knapinn sitji í hnakknum sé líkaminn stöðugt að bregðast við hreyfingum hestsins. Reglubundin líkamsþjálfun geti því hjálpað knöpum að mæta þessum kröfum.
Við erum ekki fullkomlega samhverf
„Við erum í raun öll ósamhverf að einhverju leyti. Flest okkar hafa ríkjandi hlið og það er fullkomlega eðlilegt,“ segir Halldóra.
Hún telur ekki nauðsynlegt að knapinn sé fullkomlega samhverfur. Mikilvægara sé að hafa nægilega góða hreyfigetu og stjórn til að geta unnið með báðum hliðum líkamans.
Ef knapi eigi til dæmis auðveldara með að færa þungann yfir á annað setbeinið eða snúa bolnum í aðra áttina geti það haft áhrif á ásetuna og þær ábendingar sem hann gefur hestinum.
Í starfi sínu hefur Halldóra einkum orðið vör við verki og skekkjur í mjóbaki og mjöðmum hjá knöpum. Hún tekur þó fram að slík einkenni séu einnig algeng meðal fólks almennt.
Henni þykir sérstaklega áhugavert hvernig takmarkanir í einum líkamshluta geta haft áhrif á aðra. Skertur hreyfanleiki í annarri mjöðm geti til dæmis breytt stöðu mjaðmagrindarinnar og þar með haft áhrif á hvernig knapinn situr í hnakknum.
Þegar skekkjan verður eðlileg
Halldóra útskýrir að heilinn byggi stöðugt upp tilfinningu fyrir því hvar líkaminn er staðsettur í rýminu. Þetta kallast stöðuskyn (e. proprioception). Líkamsstaða sem við höfum vanið okkur á geti farið að upplifast sem eðlileg þótt hún sé það ekki. Þetta sé sérstaklega áhugavert í reiðmennsku þar sem knapinn þurfi að skynja bæði eigin líkama og hreyfingar hestsins.
Gamlir áverkar og verkir geta einnig haft áhrif. Þegar við finnum fyrir verkjum breytum við oft ósjálfrátt hreyfimynstri okkar til að verja okkur. Að sögn Halldóru getur slík vörn haldist löngu eftir að einkennin eru horfin.
Knapinn getur því farið að færa meiri þunga yfir á aðra hliðina eða forðast tilteknar hreyfingar án þess að gera sér grein fyrir því. Það hefur áhrif á reiðmennskuna og skilar sér að lokum til hestsins.

Halldóra Huld Ingvarsdóttir segir knapann þurfa að skynja bæði eigin líkama og hreyfingar hestsins.
Ljósmynd: Úr einkasafni
Myndavélin getur sýnt annað en knapinn finnur
Hvernig getur knapi áttað sig á eigin líkamsbeitingu ef honum finnst hann sitja rétt?
Halldóra segir myndbandsupptökur geta verið gagnlegar. Þær gefi knapanum tækifæri til að sjá eigin líkamsbeitingu utan frá og bera hana saman við það sem hann upplifir í hnakknum.
Einnig geti verið gagnlegt að skoða hreyfanleika, styrk, jafnvægi og hreyfistjórn þegar knapinn er ekki á baki. Sjúkraþjálfari geti aðstoðað við að greina hvort líkamlegar takmarkanir séu til staðar. Síðan sé hægt að vinna markvisst með þær, bæði með styrktaræfingum og sérhæfðari æfingum sem bæta líkamsvitund og samhæfingu.
Halldóra telur þó mikilvægt að nálgast slíka vinnu ekki út frá því að finna skekkju sem þurfi að laga. Markmiðið eigi fremur að vera að bæta hreyfigetu, líkamsvitund og stjórn svo knapinn eigi auðveldara með að vinna með hestinum.
Litlu atriðin skipta máli á hæsta stigi
Reynslan af starfi með landsliðinu hefur gefið Halldóru innsýn í þær kröfur sem gerðar eru til knapa í fremstu röð.
Á hæsta stigi geti litlar breytingar á spennu, jafnvægi eða hreyfistjórn haft mikil áhrif í harðri keppni. Reiðmennskan krefjist því mikillar nákvæmni í líkamsstjórn og beitingu.
Hún telur hinn almenna hestamann geta lært af þessari nálgun og hugsað um eigin líkama sem hluta af þjálfuninni. Reglubundin hreyfing geti mögulega dregið úr álagseinkennum, gert umhirðu hestanna auðveldari og skemmtilegri og bætt reiðmennskuna.
Ekki bíða eftir verkjunum
„Styrktarþjálfun ætti ekki að vera eitthvað sem við byrjum að stunda eftir að meiðsli koma upp,“ segir Halldóra.
Markviss styrktarþjálfun geti aukið álagsþol líkamans og bætt almenna líkamlega getu. Það skipti máli bæði fyrir frammistöðu og til að draga úr hættu á ákveðnum álagsmeiðslum.
Fyrir knapa leggur hún sérstaka áherslu á styrk í bol og neðri útlimum ásamt góðri hreyfigetu, jafnvægi og samhæfingu.
Hvíldin megi þó ekki gleymast. Svefn, endurheimt og hæfileg stýring á æfingaálagi séu ekki síður mikilvægir þættir.
Ef knapi finnur ítrekað fyrir sömu erfiðleikum, sérstaklega á fleiri en einum hesti, geti verið ástæða til að skoða hvort eigin hreyfigeta eða hreyfistjórn spili þar inn í. Það þurfi þó ekki endilega að þýða að eitthvað sé að. Öll höfum við okkar styrkleika og veikleika.
Við þjálfum hestinn til að verða sterkari, jafnari og betur í stakk búinn til að takast á við verkefnin. Það sama ætti að gilda um knapann.
Í fjórðu og síðustu grein greinaraðarinnar „Knapinn sem íþróttamaður“ tökum við afreksknapann Árna Björn Pálsson tali um eigin líkamsþjálfun og mikilvægi þess að vera líkamlega undirbúinn fyrir kröfur reiðmennskunnar.
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni