Félagsmálabikar UMSE til Funa
Hestamannafélagið Funi hlaut félagsmálabikar UMSE, Ungmennasambands Eyjafjarðar, en hann hlýtur það félag sem talið er að hafi starfað hvað best í þágu félags- og íþróttamála á hverju ári.
Anna Kristín Friðriksdóttir, hestamannafélaginu Hringi, var valin Hestaíþróttamaður UMSE 2011. Anna Kristín hefur skarað fram úr hvað varðar félagsmenn Hrings á keppnisvellinum, hún tók þátt í 33 mótum á árinu og árangurinn hreint frábær. Bak við slíkan árangur er mikil vinna með miklum aga og áhuga á íþróttinni. Henni hefur tekist að bæta sig jafnt og þétt samhliða því að þjálfa hesta sína þannig að saman eru þau í fremstu röð jafnaldra á landsvísu.
Anna Kristín var kjörinn íþróttamaður Hrings á haustdögum fyrir m.a. eftirfarandi árangur á keppnisárinu:
- Íslandsmót Barna/unglinga og ungmenna: Fjórgangur 5.sæti, Tölti 5.sæti, Gæðingaskeið 6.sæti
- Landsmót hestamanna Unglingaflokkur 2.sæti í B- úrslit.
- Fákaflug unglingafl. 1.sæti
- KEA-mótaröð Léttis Fjórgangur opinn flokkur 4-5.sæti
- Einarsstaðamót Þjálfa Tölt 1. Sæti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH