Birna Olivia kjörin íþróttamaður USVH 2023
Birna Olivia Ödqvist hestakona hefur verið kjörin íþróttamaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga árið 2023.
Kjörinu var lýst við athöfn í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga 30. desember síðastliðinn.
Birna Olivia kom öflug inn á árinu sem keppnismaður í hestaíþróttum og var m.a. í liði í Suðurlandsdeildinni sem vann þá deild. Einnig lenti hún í fyrsta sæti í tveimur greinum á mjög sterku Reykjvíkurmeistaramóti í sumar.
Í öðru sæti í kjörinu varð Hilmir Rafn Mikaelsson knattspyrnumaður og í þriðja sæti varð Ingvi Rafn Ingvarsson knattspyrnumaður.
Keppnisárangur ársins:
Suðurlandsdeild
Parafimi
1. sæti – Tindur frá Árdal
Fjórgangur
1. sæti – Tindur frá Árdal
Tölt
5. sæti – Tindur frá Árdal
Opið WR Íþróttamót Geysis 25. maí
Meistaraflokkur T3
1. sæti – Kór frá Skálakoti
Meistaraflokkur V2
1. sæti – Ósk frá Stað
Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR 12. júní
1. Flokkur T3
1. sæti – Kór frá Skálakoti
1. Flokkur V2
1. sæti – Ósk frá Stað
WR Suðurlandsmót 25. ágúst
Meistaraflokkur T2
3. sæti – Ósk frá Stað
Meistaraflokkur V1
6. sæti – Ósk frá Stað
Meistaraflokkur V2
3. sæti – Röskva frá Ey I
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH