Ræktun 2011 – Dagskrá
Hin árlega reiðhallarsýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands „Ræktun 2011“ fer fram í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli í dag laugardaginn 23. apríl nk. kl. 20.
Þar mun mikill hópur glæsilegra kynbótahrossa koma fram, afkvæmahópar, ræktunarbú, hryssur og stóðhestar. Auk kynbótahrossanna verður boðið upp á nýja keppnisgrein, svokallað „Tilþrifaskeið“ þar sem margir af þekktustu knöpum landsins ætla að láta gamminn geisa. Daníel Jónsson stórknapi átti hugmyndina, en hann hefur gjarna sýnt ýmis tilþrif, s.s. að setja tauminn í munninn, á fullri ferð á skeiði. Daníel skoraði á nokkra kollega sína sem auðvitað tóku áskoruninni og verður spennandi að sjá útkomuna í kvöld – gæti orðið skrautlegt! Þulir verða Hulda G. Geirsdóttir og Gunnar Arnarsson.
Hér má sjá lista yfir þau atriði sem verða í boði í kvöld (í stafrófsröð):
Afkvæmi Glímu frá Vindheimum
Afkvæmi Glóðars frá Reykjavík
Afkvæmi Perlu frá Ey
Afkvæmi Urðar frá Sunnuhvoli
Alhliða hross
Alsystur frá Torfastöðum undan Silkisif og Gígjari
Austurkot – ræktunarbú
Ágústínus frá Melaleiti og Daníel Jónsson
Bakkakot – ræktunarbú
BÁS ræktun
Blesastaðir 2a – Afkvæmi Aríu
Dalbær – ræktunarbú
Drottningin og skytturnar þrjár (Lýtingsstaðahross)
Dögg frá Steinnesi og Ólafur Ásgeirsson
Feðgar á ferð
Heiðurshryssa Suðurlands
Hestafjör – Ölfusstrumpar úr Ljúf og Háfeta
Hross út af Tign frá Enni
Hryssur frá Feti
Hvoll – ræktunarbú
Kaldbakur – ræktunarbú
Kiljan frá Steinnesi og Þorvaldur Árni
Klárhestar
Klárhryssur 1
Klárhryssur 2
Stálasynir – Bláskjár og Spói
Styrkur til exemrannsókna afhentur
Sunnlensk verðlaunabú
Tilþrifa skeið : )
Torfastaðir – ræktunarbú
Sýningin hefst kl. 20 og er miðaverð kr. 2.500, en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH