Kristín Eir hlaut Auðunsbikarinn
Kjör íþróttamanneskju Borgarfjarðar fór fram í Hjálmakletti í gær, laugardaginn 6. janúar auk þess sem afreksíþróttafólk úr Borgarfirði var heiðrað fyrir afrek á árinu.
Hestaíþróttir áttu sinn fulltrúa á meðal 10 efstu því Kristín Eir Hauksdóttir Holaker í Skáney var á meðal tíu efstu í kjörinu. Kristín er keppandi í unglingaflokki en hún náði mjög góðum árangri í ár og var iðin við það að keppa.
Ekki nóg með það að hún skildi vera á meðal efstu í kjörinu að þá hlaut hún, ásamt hlauparanum Sindra Karli Sigurjónssyni, Auðunsbikarinn sem segir svo um á vef Ungmennsamband Borgarfjarðar.
Auðunsbikarinn var veittur í 29. sinn í ár en Auðunsbikarinn er veittur af Minningarsjóði Auðuns Hlíðkvist Kristmarssonar sem lést, 2. ágúst 1995, aðeins 14 ára gamall. Bikarinn er veittur 14 ára unglingi sem þykir efnilegur í íþrótt sinni, sýnir metnað í ástundun og framkomu og er góð fyrirmynd innan vallar sem utan.
Tilgangur viðurkenningarinnar er að minnast Auðuns Hlíðkvist og einnig að styðja við og hvetja áfram unga og efnilega íþróttamenn á svæðinu.
Eiðfaxi óskar Kristínu til hamingju með viðukenninguna en hún er ein af fjölmörgum hestaíþróttamönnum sem hafa hlotið viðurkenningar og útnefningar í heimahéraði fyrir góðan árangur á árinu.

Kristín og Þytur frá Skáney á LM2022
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH