Verð á útfluttum hrossum hækkar milli ára
Mynd: Auðsholtahjáleiga/Horse Export
Árið 2023 voru flutt út alls 1.592 hross en það er töluvert minna en metárið 2021 en þá voru flutt út 3.341 hross og árið 2022 voru flutt út 2.085 hross. Af þessum 1.592 hrossum eru 274 stóðhestar, 616 geldingar og 702 hryssur. 119 af útfluttu hrossunum höfðu hlotið fyrstu verðlaun í kynbótadómi en hæst dæmda hrossið sem fór út var Þór frá Stóra-Hofi (8,84 ae.) en hann fór með knapa sínum Viðari Ingólfssyni og keppti fyrir Íslandshönd á heimsleikum í Hollandi í sumar. Þór er nú í Þýskalandi.
Flest hross til Þýskalands
Eins og jafnan áður voru flest hross flutt til Þýskalands (757) en næst flest til Danmerkur (193) og síðan til Austurríkis (101) og Bandaríkjanna (101). Útflurnigur var til 21 landa innan Evrópu og til Bandaríkjanna.
Meðalverð hefur hækkað
Hagstofa Íslands heldur einnig utan um tölur tengdum útflutningi á hrossum gegnum tollskrárnúmer og hafa birt þær fyrir fyrstu tíu mánuði ársin. Þar hefur útflutningur 1.225 hrossa verið gefinn upp og rúmir 2 milljarðar króna heildar FOB verð samanborið við 1,3 milljarðar króna árið áður. Tollskrárnúmerin eru þrjú; „hreinræktaðir hestar til undaneldis,“ „reiðhestar“ og „aðrir lifandi hestar en reiðhestar og hestar til undaneldis “. Uppgefið meðalverð á útfluttu hrossi hefur hækkað í ár frá því í fyrra en fyrstu tíu mánuði ársins 2023 var uppgefið meðalverð rúmlega 1.660.000 kr. samanborið við 916.000 kr. árið áður og 690.000 árið 2021. Hæst uppgefna meðalverðið er fyrir hross sem fóru til Sviss eða um 2,8. milljónir kr. en þar á eftir er Finnland með meðalverðið um 2,5 milljónir kr. Lægst er verðið fyrir hross sem fóru til Ungverjalands, en þar var meðalverðið 211.430 krónur.
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Hæst dæmdi hestur í heimi
Kynbótahross á Landsmóti