Myndband af hæstu sýningu ársins 2023
Hæst dæmda hrossið árið 2023 í kynbótadómi var Seiður frá Hólum
Seiður hlaut fyrir sköpulag 8,63 og fyrir hæfileika 8,93 sem gerir 8,83 í aðaleinkunn. Konráð Valur Sveinsson sýndi klárinn en hann er í eigu Sveins Ragnarssonar og ræktaður af Hólaskóla. Seiður er undan Trymbli frá Stóra-Ási og Ösp frá Hólum. Seiður hlaut m.a. 9,5 fyrir skeið og samstarfsvilja.
Við birtum hér sýningu Seiðs með góðfúslegu leyfi frá eiganda Seiðs og myndbandið er fengið hjá Alendis.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH