Danmörk Hraði hæst dæmda dansk fædda hrossið

  • 12. janúar 2024
  • Fréttir

Hraði fra Skovhuset, knapi Sigurður Óli Mynd: aðsend

Kynbótasýningar árið í Danmörku 2023

Í Danmörku voru haldnar fjórar kynbótasýningar, þrjár í Herning og ein í Hedeland.

Sýnd voru 160 hross frá Danmörku, 108 í fullnaðardóm og 52 einungis í sköpulagsdóm. Flest voru sýnd í Danmörku en 20 voru sýnd í Þýskalandi, fjögur í Hollandi og níu í Danmörku. Af 108 hrossum sem voru sýnd í fullnaðardóm hlutu 31 fyrstu verðlaun. 24 hross voru sýnd oftar en einu sinni í fullnaðardómi.

Meðalhæð hrossanna sem hlutu fullnaðardóm er 141,7 cm. Meðaltal fyrir sköpulag er 8,01, hæfileika er 7,71 og meðaltal aðaleinkunnar er 7,82. Meðalaldur hrossanna var 6,47.

Hraði fra Skovhuset er hæst dæmda hrossið árið 2023 í Danmörku. Hraði hlaut fyrir sköpulag 8,29 og fyrir hæfileika 8,66 sem gerir 8,53 í aðaleinkunn. Það var Sigurður Óli Kristinsson sem sýndi hestinn en hann sýndi hann í sex vetra flokki stóðhesta á heimsmeistaramótinu. Hraði er undan Feyki frá Háholti og Særúnu frá Sauðárkróki. Eigendur og ræktendur Hraða eru Skovhuset Islandsheste v. Vivi Guul og Sven-Jørn Guul

Hæst dæmda hryssan var Dama fra Legind en hún er sjö vetra og hlaut fyrir sköpulag 7,98 og fyrir hæfileika 8,45 sem gerir 8,29 í aðaleinkunn. Sýnandi Dömu var Mette Bovbjerg Sørensen en hún er jafnframt eigandi Dömu ásamt Bo Sørensen. Ræktandi er Bjarne Bovbjerg en Dama er undan Nökkva fra Glyngøre og Ástu fra Legind.

Tíu hæst dæmdu hrossin ræktuð í Danmörku

Fæðingarnúmer Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi S H Ae.
DK2017100389 Hraði Skovhuset Sigurður Óli Kristinsson 8.29 8.66 8.53
DK2015100181 Hagalín Engholm Agnar Snorri Stefansson 8.55 8.34 8.41
DK2017100663 Óskar Højgaarden Jóhann Rúnar Skúlason 8.46 8.3 8.36
DK2016100618 Nökkvi Bendstrup Søren Madsen 8.59 8.22 8.35
DK2018100163 Lótus Søgård Sigurður Óli Kristinsson 8.14 8.4 8.31
DK2016200352 Dama Legind Mette Bovbjerg Sørensen 7.98 8.45 8.29
DK2016200638 Vaka Gavnholt Agnar Snorri Stefansson 8.24 8.28 8.27
DK2017100099 Þór Pegasus Þórður Þorgeirsson 8.11 8.34 8.26
DK2018100150 Kóngur Teland Sigurður Óli Kristinsson 8.59 8.05 8.24
DK2017200254 Guðrún Bredgaard Søren Madsen 8.19 8.25 8.23
DK2017200629 Álfadís Guldbæk Sigurður Óli Kristinsson 8.29 8.19 8.23
DK2018100440 Nagli Guldbæk Sigurður Óli Kristinsson 8.39 8.14 8.23
DK2016200467 Sletta Teland Steffi Svendsen 7.99 8.35 8.23

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link