Njáll og Gleði bestu folöldin í Svarfaðardal

  • 12. janúar 2024
  • Fréttir
Folaldasýning Hrossaræktarfélags Svarfaðardals og nágrennis var haldin 6 janúar eftir nokkurra ára hlé.

Sýningin var vel sótt þar sem 22 folöld tóku þátt og einn ungfoli.

Úrslit urðu eftirfarandi:

Hestaflokkur:

Stoltir eigendur efstu hestfolalda

1. Njáll frá Njálsstöðum
F. Náttfari frá Varmalæk
M. Hrafney frá Njálsstöðum
Eigandi: Freydís Dana og Guðröður

2. Neisti frá Dalvík
F. Eldur frá Torfunesi
M. Glóð frá Dalvík
Eigandi: Sveinbjörn Hjörleifsson og Elín Björk

3. Bjartur frá Dalvík
F. Hringur frá Gunnarsstöðum
M. Embla frá Dalvík
Eigandi: Sævaldur Jens Gunnarsson

Í hryssuflokknum var mjótt á munum, eftir forkeppni voru 4 hryssur sem dómarar þurftu að líta betur á og urðu niðurstöður svohljóðandi

Hryssuflokkur:

Stoltir eigendur efstu merfolalda

1. Gleði frá Grund
F. Svaði frá Hjarðartúni
M. Gjöf frá Grund
Eigandi: Friðrik Þórarinsson

2. Goðadís frá Hofi
F. Eldur frá Torfunesi
M. Náttsól frá Dalvík
Eigandi: Árni Sigurður og Kristín

3. Herja frá Skáldalæk
M. Valur frá Úlfsstöðum
F. Herma frá Hryggstekk
Eigandi: Freydís Dana og Guðröður

4. Hrafntinna frá Jarðbrú
F. Kjuði frá Dýrfinnustöðum
M. Tara frá Jarðbrú
Eigandi: Jóhanna Elín

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar