Folatollar í verðlaun
Árleg folaldasýning Sörla verður haldin í reiðhöllinni að Sörlastöðum í Hafnarfirði laugardaginn 28. febrúar og hefst kl. 13:00.
„Dómarar að þessu sinni eru framkvæmdastjórar Fáks og Spretts, þeir Jón Finnur Hanson og Magnús Benediktsson.
Keppt verður í flokki mer- og hestfolalda. Tvö folöld verða sýnd í hverju holli.
Ókeypis aðgangur fyrir áhorfendur og veitingarsala.
Verðlaun verða veitt fyrir folald sýningar að mati dómara, folald sýningar að mati áhorfenda og efstu folöld í hvorum flokki fyrir sig.
Uppboð á folatollum verður í hléi undir stóðhestana:
Hágang frá Narfastöðum
Aðal frá Nýjabæ
Sjóð frá Kirkjubæ
Eril frá Einhamri
og Hersi frá Lambanesi
Verðlaunatollarnir eru ekki af verri endanum en í verðlaun eru eftirfarandi hestar:
Eldjárn frá Tjaldhólum
Hákon frá Ragnheiðarstöðum
Svaki frá Miðsitju
Markús frá Langholtsparti
Arður frá Enni
Skyggnir frá Skeiðvöllum
og Ungfolinn Kolfinnur frá Varmá, undan Spuna frá Vesturkoti og Hörpudís frá Kjarnholtum
Skráning hefst sunnudaginn 22. febrúar kl. 10:00 og lýkur á miðnætti fimmtudaginn 26. febrúar. Skráningargjald er 2.000 kr. fyrir hvert folald og skráning er á netfanginu [email protected],“ segir í tilkynningu frá kynbótanefnd Sörla.
Margareterhof er selt
Framlengdur skráningafrestur í Suðurlandsdeild