Hestadagar byrja vel

  • 29. mars 2011
  • Fréttir
Hestadagar byrja vel

Mikil ánægja var á meðal þeirra gesta sem tóku þátt í kynbótaferðum Hestadaga í Reykjavík í dag og í gær. Um fimmtán þáttakendur mættu í hvora ferð.

Í gær var farið í kynbótaferð um Suðurland þar sem heimsótt voru tvö ræktunarbú. Gestir fengu að líta inn í Ræktunarbú ársins 2010, Syðri-Gegnishóla, þar sem Olil Amble og Bergur Jónsson, reka ræktunarbú undir merkjum Gangmyllunnar. Sýndu Olil og Bergur brot af besta úr þeirra ræktun. Að Grænhóli buðu Gunnar Arnarsson og Kristbjörg Eyvindsdóttir upp á kaffi og kökur auk þess að sýna þeim glæsilegar afurðir úr ræktun þeirra hjóna.

Eiðfaxi var með í för þegar var farin kynbótaferð um Vesturland í dag. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri var heimsóttur, þar sem Þorvaldur Kristjánsson, Gunnar Reynisson og Sigtryggur Veigar Herbertsson kynntu námsframboð og rannsóknarverkefni á vegum skólans. Þá var farið að Mið-Fossum þar sem Reynir Aðalsteinsson var með kennslusýningu og kvennahópurinn Skessunar sýndu listir sínar. Að lokum var ræktunarbú ársins 2004, Skáney, sótt heim þar sem Bjarni Marínósson, Birna Hauksdóttir, Haukur sonur þeirra, Randi Holaker tengdadóttir þeirra tóku vel á móti gestum og sýndu þeim aðstöðu sína og gæðinga.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr þessum vel heppnuðu ferðum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link