Nýr Eiðfaxi kominn út

  • 1. nóvember 2011
  • Fréttir
Nýr Eiðfaxi kominn út

Sjöunda tölublað ársins af Eiðfaxa er komið út. Forsíðan er ljósmynd Birgitte Kieckbusch sem segir ferðasögu sína í blaðinu, þá eru nemendur Hólaskóla teknir tali, Lilja Sigurðardóttir tamningakona heimsótt og farið er ofan í saumana á aðbúnaði hrossa í hesthúsum svo fátt eitt sé nefnt um efni blaðsins.

Blaðið hefur nú þegar verið sett inn á vefinn – hér.

Allir áskrifendur Eiðfaxa hafa rétt á fríum aðgangi að rafræna blaðinu.

Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér.

Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið ingibjö[email protected]. Þá mun hin heiðraða Ingibjörg opna fyrir aðgang að rafræna blaði Eiðfaxa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link