Myndskeið af Viðari og Tuma á HM-

  • 20. ágúst 2011
  • Fréttir
Myndskeið af Viðari og Tuma á HM-

Ferill Viðars Ingólfsson og Tuma frá Stóra-Hofi í töltkeppni Heimsmeistaramótsins var nokkuð átakamikill. Eftir forkeppni voru þeir félagar í 11. sæti, aðeins einu sæti frá B-úrslitum. Eftir afskráningu fengu félagarnir svo þátttökurétt í B-úrslitum sem þeir nýttu til fulls, fóru mikinn á öllum gangtegundum og mörðu fram stórkostlegan sigur.

Á meðfylgjandi myndböndum má sjá sýningu Viðars og Tuma í forkeppninni og skot úr B-úrslitum þar sem Viðar og Tumi öttu kappi við Luciu Koch frá Austurríki á Jarli frá Miðkrika, Finnann Juha Matti Kontio á Röðul frá Holtsmúla 1, Ástu Dögg Bjarnadóttur-Covert á Dynjanda frá Dalvík en þau keppa fyrir Bandaríkin og Dennis Hedebo Johansen og Kolfaxa fra Lilleheden í Danmörku.

Viðar og Tumi stóðu sig svo með ágætum í votviðri A-úrslitana, en varð af 5. sætinu þegar þátttaka þeirra var gerð ógild vegna þess að hlífar Tuma reyndust of þungar vegna regnsins eftir úrslitin.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link